Author: lensherra

Baðstofunni boðið til Wiesbaden

Leiksýningu Þjóðleikhússins á Baðstofunni hefur verið boðið á leikritatvíæringinn í Wiesbaden í Þýskalandi í sumar. Þar fer fram ein þekktasta leiklistarhátíð Evrópu, en hún er helguð nýjum leikritum. Baðstofan er þriðja leikrit Hugleiks Dagssonar en verkið var frumsýnt í leikstjórn Stefáns Jónssonar í Kassanum þann 9. febrúar sl. Tvíæringur þessi er stærsta leiklistarhátíð Evrópu sem einvörðungu kynnir verk núlifandi leikritahöfunda en í ár mun hátíðin standa frá 12.- 22. júní. Aðstandendur hátíðarinnar ferðast vítt og breitt um Evrópu til þess að kynna sér fjölbreytt leikhúslíf landanna og má því gera ráð fyrir að á hátíðinni verði rjómi þess allra...

Sjá meira

Saga Bandalagsins á Rás 1

Á laugardaginn verður fluttur á rás 1 útvarpsþáttur um útgáfu Sögu Bandalagsins sem áformað er að komi út í vor. Þátturinn er á dagskrá á laugardaginn, 8. mars, klukkan 15.20 og verður endurfluttur föstudagskvöldið 14. mars. Þáttagerð annaðist fyrrverandi starfsmaður Bandalagsins, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir. Í þættinum er m.a. rætt við Bjarna Guðmarsson, söguritara, og Þorgeir Tryggvason, formann bandalagsins og sögunefndarmann, auk þess sem lesnir eru kaflar úr handriti bókarinnar. Þátturinn er hluti af þáttaröðinni Brot úr íslenskri menningarsögu sem er unnin í samstarfi við sagnfræðiskor Háskóla Íslands undir handleiðslu Ólínu...

Sjá meira

Leiklistarskóli Bandalagsins 2008

Við kynnum með stolti námskeiðin sem Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga ráðgerir að halda að Húsabakka í Svarfaðardal dagana 7. til 15. júní 2008. Að þessu sinni verður boðið upp á Leiklist II sem hefðbundið er að gera í kjölfar Leiklistar I. Kennari er Ágústa Skúladóttir en námskeiðin hennar hafa alltaf verið gríðarlega vinsæl og vel sótt. Þá bjóðum við velkominn aftur Rúnar Guðbrandsson sem mun bjóða upp á sérnámskeið fyrir reyndari leikara. Hann var síðast með svipað námskeið árið 2005 sem nemendur lofuðu í hástert. Þetta árið höfum við svo fengið Bjarna Jónsson til að bjóða upp á grunnnámskeið...

Sjá meira

Tveir tvöfaldir á Blönduósi

Næstkomandi föstudagskvöld frumsýnir Leikfélag Blönduóss gamanleikinn „Tveir tvöfaldir“ eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir og þetta er í annað skipti sem hún leikstýrir á Blönduósi. Leikarar eru átta talsins en að sýningunni koma í kring um tuttugu manns.   Leikritið er fjörugur farsi sem fjallar um alþingismanninn Orm Karlsson, eiginkonu hans Pálínu og aðstoðarmanninn Hrein. Inn í þetta fléttast hjákonan Ásthildur, kínverski þjónninn Sjú-Lí, Doddi, María og síðast en ekki síst hótelstjórinn á Hótel Höll þar sem þetta gerist nú allt saman. Óhætt er að lofa skemmtilegri kvöldstund en miðaverð er kr. 2.500 og...

Sjá meira

Verðlaun fyrir Svartan hatt

Leikskáld  framtíðarinnar áttu sviðið síðasta laugardagskvöld þegar úrslit  hinnar árlegu  örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins og Listaháskóla Íslands fyrir  framhaldsskólanema fór fram. Fimm verk voru valin til þátttöku í úrslitunum en  fjöldi örleikrita barst vítt og breitt af landinu. Leiklistarnemar á öðru ári í LHÍ  fluttu verkin með tilþrifum en leikskáldin sem komust í úrslit voru Árni  Arason, Guðrún Sóley Sigurðardóttir, Adam Hoffritz, Ingi Vífill Guðmundsson og  Guðmunda Ólafsdóttir. Sigurvegari keppninnar var Guðmunda Ólafsdóttir  sem hlaut fyrstu verðlaun fyrir verk sitt Svartur hattur. Í öðru sæti var  Guðrún Sóley Sigurðardóttir – en þess má geta að hún sigraði keppnina í fyrra  og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert