Author: lensherra

Vill einhver elska ….

49 ára gamlan mann? Hann vinnur hjá skattinum… og týndi skjalatöskunni sinni… og fann aðra með 400 milljónum… Leikfélag Sauðárkróks sýnir gamanleikinn Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney í nýrri leikgerð og þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Frumsýning verður sunnudaginn 27. apríl klukkan 20:30 í Bifröst á Sauðárkróki. Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson. Aumingja Haraldur, hann veit bara ekkert í hvorn fótinn hann á að stíga. Hann týndi skjalatöskunni sinni með hönskunum, treflinum og gemsanum og fékk aðra fulla af peningum í staðinn. Það er ekki gott að týna gemsanum sínum en er gott að finna tösku fulla af peningum?...

Sjá meira

Leikfélagið Sýnir boðar til aðalfundar

Sunnudaginn 27. apríl nk. verður aðalfundur Leikfélagsins Sýna haldinn í húsnæði Leikfélag Hafnarfjarðar í Gamla Lækjarskóla. Fundurinn hefst klukkan 16.00 og á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir þeir sem áhuga kunna að hafa á starfa með félaginu eru hvattir til að mæta en félagið starfar á landsvísu og hefur sérhæft sig í að setja upp útileikssýningar á sumrin. Stjórnin...

Sjá meira

Borgarbörn fagna 444 ára afmæli Shakespeares

Borgarbörn, barna- og unglingaleikhús, frumsýna Allt í misgripum eftir William Shakespeare á Nýja sviði Borgarleikhússins þann 23. apríl kl. 19:00.  Sýningin er hluti af Shakespeare 24, sem er stærsta alþjóðlega  Shakespeare-leiklistarhátíð, sem haldin hefur verið meðal barna og unglinga.   Shakespeare 24 er stórkostlegt heimshornaflakk til heiðurs 444 afmælisdegi Shakespeares. Flakkið hefst á Nýja Sjálandi og lýkur 24 stundum síðar á Hawaii. Sextíu og tveir unglingahópar (11-21 árs) frá 34 löndum munu setja á svið verk höfundarins klukkan 19:00 á staðartíma.  ...

Sjá meira

Aðalfundur BÍL 2008 – Einþáttungahátíð fellur niður!

Vegna lítillar þátttöku fellur einþáttungahátíðin niður sem við ætluðum að halda í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga helgina 1.-4. maí. Þátttaka í aðalfundi er lítil og því var nauðsynlegt að leita nýrra samninga við staðarhaldara hjá Félagsheimilinu Árgarði og gistiheimilinu að Bakkaflöt. Það er komin ný dagskrá og miðast hún við tvær gistinætur og fæði laugardag og sunnudag (til og með hádegis). Koma á föstudagskvöldið er frjáls en við búumst við að fólk mæti í Bifröst á sýninguna Viltu finna milljón? hjá Leikfélagi Sauðárkróks kl. 20.30 og komi að Bakkaflöt þegar henni lýkur eða um kvöldið eftir hentugleikum...

Sjá meira

Aukasýning á 39½ viku

Hugleikur verður með aukasýningu á leikritinu 39½ viku eftir Hrefnu Friðriksdóttur föstudaginn 25. apríl í Möguleikhúsinu við Hlemm vegna góðrar aðsóknar. Lokasýning var sl. miðvikudag og var þá sýnt fyrir troðfullu húsi. Leikstjórar 39½ viku eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam og Sigurður H. Pálsson. 39½ vika er farsakenndur gamanleikur sem snýst að verulegu leyti um barneignir og sauðfjárrækt. Sveitapilturinn Valur fær afnot af skrifstofu frænku sinnar, sem starfar sem félagsráðgjafi á kvennadeild sjúkrahúss. Valur er að leggja lokahönd á lokaritgerð sína um ættir og örlög skagfirsku sauðkindarinnar. Vera hans á skrifstofunni leiðir til hvers konar misskilnings, eins og vera...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert