SL heldur málþing i Iðnó
Fimmtudaginn 29. Maí kl. 12-14 halda Sjálfstæðu leikhúsin málþing í Iðnó um stöðu stjálfstætt starfandi sviðslistamanna. Yfirskrift málþingsins er Er starfsumhverfi sjálfstæðra leikhópa í takt við tímann? Markmið málþingsins er að hefja samræður milli ráðamanna og sjálfstætt starfandi sviðslistamanna um það starfsumhverfi sem boðið er upp á í dag en jafnframt að varpa ljósi á þá þróun sem hefur orðið á mikilvægi atvinnuleikhópa fyrir íslenskt samfélag. Mikil gróska hefur verið í starfseminni undanfarin ár og hið síbreytilega starfsumhverfi sviðslistamanna kallar á sveigjanlegt kerfi sem getur brugðist skjótt við þeim ólíku þörfum sem sjálfstætt starfandi sviðslistamenn þurfa til að þroskast...
Sjá meira


