Yfir landamæri lista og landa
Íslenskum áhorfendum gefst nú einstakt tækifæri til að sjá hina óvenjulegu og rómuðu samísku leiksýningu Sá hrímhærði og draumsjáandinn. Samíska leikhúsið Beaivvá sýnir verkið í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þriðjudagskvöldið 27. maí nk. Leikstjóri sýningarinnar og listrænn stjórnandi leikhússins er Haukur J. Gunnarsson. Haukur er íslenskum áhorfendum að góðu kunnur fyrir uppsetningar sínar og gestaleiki hér á landi, en hann hefur lengst af starfað á Norðurlöndum. Haukur hefur kynnt sér náið menningararfleifð Sama og japanska leikhúshefð, og hefur þannig einstaka stöðu í leikhúsheiminum. Nils Aslak Valkeapää, höfundur leikritsins Sá hrímhærði og draumsjáandinn er þekktasta ljóð- og tónskáld Sama. Líkt og...
Sjá meira


