Author: lensherra

Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna frumsýnt

Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir sjónleikinn Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna föstudaginn 16. janúar kl. 17 í Nýlistasafninu. Verkið er hluti af fimm verka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Höfundur og leikstjóri verksins er Steinunn Knútsdóttir um útlit sér Ilmur Stefánsdóttir. Verkin eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir guði og viðurkennir vanmátt sinn. Verkin leita að sársaukanum sem býr djúpt inní sálu mannsins og leitast við að skilja hann. Fyrsta verkið í kvintólógíunni var Ódauðlegt verk um stjórn og...

Sjá meira

Blúndur og blásýra í Þorlákshöfn

Föstudagskvöldið 16. janúar n.k. mun Leikfélag Ölfuss frumsýna sakamálafarsann Blúndur og blásýru eftir Joseph Kesselring. Leikritið sem er í fullri lengd verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Haukur Arnarsson, Hulda Gunnarsdóttir, Júlía Káradóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Ólafur Hannesson, Ragnheiður Helga Jónsdóttir, Þórður Njálsson og Þrúður Sigurðar. Leikritið segir frá tveim eldri systrum, Abby og Mörthu sem búa í ættarhúsinu ásamt frænda sínum sem gengur ekki heill til skógar.  Þær hafa orð á sér fyrir að vera einstök gæðablóð. Þegar annar frændi birtist skyndilega með að því er...

Sjá meira

Yfir 1900 gestir á Emil!

Emil í Kattholti er engum líkur og er gríðarlega vinsæll. Nú hafa yfir 1900 gestir komið í gamla Samkomuhúsið á Húsavík og séð hann festa höfuðið í súpuskál, hífa Ídu systur sína upp í flaggstöng og aðstoða Línu vinnukonu í tannvandræðum. En þess má geta að íbúafjöldi Húsavíkur er um 2400. Sýningarnar hjá Leikfélagi Húsavíkur eru orðnar 20 og um næstu helgi, 10. og 11. janúar eru síðustu sýningar fyrirhugaðar. Þær hefjast báðar klukkan 16. Þeir sem ekki hafa enn séð Emil ættu því að hringja í síma 464-1129 og panta sér miða. Það verður enginn svikinn af heimsókn...

Sjá meira

Hjólastólasveitin rúllar yfir á Selfoss

Fjórir hjólastólar ásamt fríðu föru-nauti, MU-MÚ, Rampusi og Stúfi hinum eina sanni sem neitar að fara til fjalla, leggja land undir fót og herja á Selfyssinga og nærsveitarmenn með sínu ærlega og frumsamda gríni í janúarbyrjun 2009. Uppistandararnir eru fjórir fjörugir einstaklingar sem nota allir hjólastól, á alveg einstakan hátt! Þeir verða með uppistand eða sitdown og segja frá persónulegri og ópersónulegri reynslu af því að ferðast um á fjórum hjólum í landi tækifæranna. Um áskoranir í lífinu, huglægar sem hlutbundnar hindranir, ástina, ferðaþjónustu fatlaðra, geimverur, forseta lýðveldisins, alkahólsjúka hamstra, Perkúlahjónin í Finnlandi, tilskipanir og kvaðir Evrópu sambandsins, bónorðin...

Sjá meira

Jesús Guð Dýrlingur í Félagsheimili Seltjarnarness

Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi hefur að undanförnu sýnt rokkóperuna Jesús Guð Dýrlingur eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Níelsar Óskarssonar. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Nú hefur verið ákveðið að sýna 3 sýningar í Félagsheimili Seltjarnes um næstu helgi. Sýningarnar verða sem hér segir: Laugardaginn 10. janúar kl. 19:00 og 22:00 og sunnudaginn 11. janúar kl. 14:00. Miðasala í síma 894...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert