Heiður frumsýnt í Kassanum
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Heiður laugardaginn 24. janúar nk. í Kassanum við Lindargötu 7. Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Haukur Þórsson. Hér er á ferðinni einstaklega vel skrifað dramatískt verk um hjónabandið, ástina og ábyrgð okkar á eigin hamingju. Leikarar í sýningunni eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, María Ellingsen og Sólveig Arnarsdóttir. Höfundur leikritsins er ástralska leikskáldið Joanna Murray-Smith en hún er eitt af þekktustu leikskáldum Ástralíu. Hún hefur skrifað á annan tug leikrita, skáldsögur, kvikmyndahandrit og sjónvarpsleikrit, og unnið til fjölda verðlauna fyrir ritstörf sín. Heiður eða Honour var frumflutt árið 1995, og verkið hefur verið sýnt í fjölda uppsetninga...
Sjá meira


