Author: lensherra

Leikfélag Mosfellssveitar með jólasýningu

Sunnudaginn 7. desember verður frumsýnd jólasýning hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þar ríkir sannkallað jólafjör og stíga Grýla og Leppalúði á stokk ásamt jólakettinum, Leiðindaskjóðu og fleiri góðum gestum. Handritshöfundar eru Birgir Sigurðsson og María Guðmundsdóttir en einnig verður flutt gömul íslensk „jólaþjóðsaga“ sem Eva Harðardóttir setti í leikbúning. Aðeins verða sýndar tvær sýningar, sunnudaginn 7. desember kl. 16:00 og sunnudaginn 14. des. kl. 13:00. Miðaverð krónur 1.000,- og miðapantanir eru í síma 566 77 88. {mos_fb_discuss:2}    ...

Sjá meira

Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Kirsuberjagarðinn

Þann 4. desember kl. 20 frumsýnir Nemendaleikhús LHÍ Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov á Litla Sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Daníel Rylander. Tsjekhov skrifar verk sitt árið 1904, á miklum umbrotatímum í Rússlandi þar sem undirliggjandi spenna milli þjóðfélagshópa er allsráðandi, samfélagsgerð sem ríkt hefur um aldir er að hverfa og ný að taka við. Nýríku auðmennirnir í Rússlandi náðu ekki að fara í útrás, Rússlandi var umbylt, kapítalisminn sigraði ekki, aðallin sigraði ekki -fólkið sigraði ekki. Sviðsetning Nemendaleikhússins á Kirsuberjugarðinum er samtal við íslenskan samtíma. Ísland í dag er á sögulegum örlagapunkti. Hinir áhyggulausu dagar eru á enda – skemmtum...

Sjá meira

Blásýra í Ölfusi

Leikfélagi Ölfuss hefur hafið æfingar á leikritinu Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri verksins er Gunnar Björn Guðmundsson. Vel gekk að fá leikara og ganga æfingar vel. Stefnt er að frumsýningu á verkinu 16. janúar n.k. Leikfélag Ölfuss hefur fengið aðstöðu í fyrrum húsnæði hafnarinnar í Þorlákshöfn og er verið að klára að koma munum leikfélagsins fyrir þar. Í tilefni af nýju aðstöðunni verður opið hús þann 13. desember n.k. milli kl. 14:00 og 17:00 og gefst fólki þá tækifæri til að skoða húsið, fá sér kaffi og spjalla. Allir eru velkomnir. Til sölu verða...

Sjá meira

Útgáfu sögu Bandalagsins fagnað

Í tengslum við haustfund Bandalags íslenskra leikfélaga þann 22. nóvmeber var boðað til móttöku vegna útgáfu sögu Bandalagsins, „Allt fyrir andann“ í þjónustumiðstöð Bandalagsins að Suðurlandsbraut 16. Þar þakkaði Ingólfur Þórsson, varaformaður Bandalagsins, söguritaranum Bjarna Guðmarssyni, vel unnin störf svo og sögunefndinni sem var honum innan handar við ritun bókarinnar, en hana skipuðu Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Bandalagsins, Einar Njálson fyrrverandi formaður Bandalagsins og Þorgeir Tryggvason núverandi formaður. Sagan var í smíðum í átta ár og því langþráð stund upp runnin en óhætt er að segja að bókin sé mikilvæg heimild um þá þróun sem átti sér...

Sjá meira

Verslun

Verslun okkar er staðsett að Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík og fastur opnunartími er frá 8.45-12.15 virka daga. Opið eftir þegar starfsmaður er á staðnum en vissara að hringja á undan. Við sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Pantanir sem berast fyrir kl. 13.00 eru sendar samdægurs, annars næsta virkan dag. Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga fá 20% afslátt af listaverði. Leikhúsfarði (og fleira skemmtilegt) Verslunin býður til sölu mikið úrval af förðunarvörum frá Grimas í Holllandi og Kryolan í Þýskalandi. Smellið hér til að skoða vörulistann. Hann inniheldur fleira en þig grunar!     Leikrit Við eigum stærsta...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert