Halaleikhópurinn frumsýnir Sjeikspírs karnival
Þann 31. janúar n.k. mun Halaleikhópurinn frumsýna leikritið Sjeikspírs Karnival í leikgerð Þrastar Guðbjartssonar, sem einnig leikstýrir sýningunni. Unnið upp úr þremur verkum Shakespears: Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV. Þetta er ærslafullur gamanleikur, sem gerist á einum degi í Illiríu á Karnivali hjá Orsínó greifa. Hann er dapur og því koma vinir hans og leika fyrir hann alls kyns gamanleiki, til að létta honum lífið. Við sögu koma margar af þekktustu gamanleikjapersónum Shakespears, eins og t.d. Malvólíó, Tóbías Búlki, Andrés Agahlýr o.fl. Þetta er sem fyrr segir, eitt allsherjar grín frá upphafi til enda. 18 leikarar...
Sjá meira


