Author: lensherra

Haustfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 22.11. 2008

Haldinn að Funalind 2 Kópavogi kl. 13.00. 1. Úthlutunarreglur Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins, rifjaði upp umræðu frá síðastliðnum aðalfundi. Þá var ákveðið að 100% styrkur fengist fyrir sýningar sem næðu 80 mínútum. Einnig var rætt um hvort að hækka ætti styrki til þeirra leikfélaga sem senda fólk í Bandalagsskólann og hvort sá styrkur ætti aðeins að vera fyrir námskeið í sumarskólanum eða öll námskeið. Hörður Sigurðarson, lénsherra, sagði að ef breyta ætti úthlutunarreglunum ætti að stefna að því að einfalda þær, ekki flækja. Hann sagði að umræddur námskeiðsstyrkur hefði fyrst og fremst verið hugsaður sem hvatning fyrir leikfélögin til að senda fólk í skólann, en ekki til að ráða úrslitum um hvort fólk færi. Vilborg Valgarðsdóttir, framkvæmdastjóri Bandalagsins, kynnti núverandi úthlutunarreglurnar og hvernig þeim er framfylgt. Ása Hildur Guðjónsdóttir, Halaleikhópnum, taldi það mikilvægt að hækka styrki til námskeiðhalds hjá félögum þar sem það sé dýrt að halda slík námskeið og þau séu mikilvægur liður í að styrkja innri starfsemi leikfélaganna. Ekki ættu allir þess kost að sækja Bandalagsskólann. 2. Gagnrýni á Leiklistarvefnum Hörður kynnti hugmyndir sínar um gagnrýni á leiksýningar áhugafélaganna á leiklistarvefnum. Hann sagðist telja það nauðsynlegt að leikfélögin fengju faglega umfjöllun um sýningar sínar og þar sem enginn fjölmiðill virðist telja sig þess megnugan að bjóða uppá slíkt yrðu leikfélögin sjálf að sjá til þess að þetta yrði gert. Hann lagði fram eftirfarandi tillögu: Umfjöllun um leiksýningar...

Sjá meira

Góð aðsókn að Blúndum og blásýru

Gamanleikritið Blúndur og blásýra var frumsýnt sl. föstudagskvöld fyrir fullu húsi í Versölum, Þorlákshöfn. Uppselt var á 2. sýningu á laugardagskvöldið og hafa viðtökur verið vægast sagt góðar. Næsta sýning verður miðvikudagskvöldið 21. janúar klukkan 20 og eru örfá sæti laus á þá sýningu. Miðapantanir í síma 893-1863 (Ásta). Miðasala opnar í Versölum klukkustund fyrir sýningu. Næstu sýningar: Miðvikudagur 21. janúar kl. 20 Föstudagur 23. janúar kl. 20 Laugardagur 24. janúar kl. 20 Miðvikudagur 28. janúar kl. 20...

Sjá meira

Heiður frumsýnt í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Heiður laugardaginn 24. janúar nk. í Kassanum við Lindargötu 7. Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Haukur Þórsson. Hér er á ferðinni einstaklega vel skrifað dramatískt verk um hjónabandið, ástina og ábyrgð okkar á eigin hamingju. Leikarar í sýningunni eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, María Ellingsen og Sólveig Arnarsdóttir. Höfundur leikritsins er ástralska leikskáldið Joanna Murray-Smith en hún er eitt af þekktustu leikskáldum Ástralíu. Hún hefur skrifað á annan tug leikrita, skáldsögur, kvikmyndahandrit og sjónvarpsleikrit, og unnið til fjölda verðlauna fyrir ritstörf sín. Heiður eða Honour var frumflutt árið 1995, og verkið hefur verið sýnt í fjölda uppsetninga...

Sjá meira

Almennur félagsfundur hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs heldur almennan félagsfund laugardaginn 24. janúar kl. 14.00 í Leikhúsinu að Funalind 2. Á dagskrá er kynning á starfsemi félagsins fram á vor. Markmiðið er öðrum þræði að kanna hverjir ætla sér að taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Þörf er á félögum í ýmis störf, hvort sem er á sviði eða utan þess. Leikfélagið hefur nýverið lokið sýningum á Skugga-Sveini sem gekk afar vel og urðu sýningar alls 19 talsins. Félagið er nú að undirbúa ýmis verkefni á vormisseri og verða þau kynnt á ofangreindum félagsfundi....

Sjá meira

Leikfélag Selfoss æfir Sjóræningjaprinsessuna

Æfingar standa nú yfir hjá Leikfélagi Selfoss á nýju íslensku barnaleikriti sem hlotið hefur nafnið Sjóræningjaprinsessan. Höfundur og leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig tónlist verksins ásamt Guðmundi Svafarssyni. Sýnt verður í Litla leikhúsinu við Sigtún  og frumsýning er áætluð 20. febrúar. Leikritið segir frá Soffíu sem alist hefur upp á hafnarknæpunni Sporðlausu hafmeyjunni eftir að hún birtist þar með vofeiflegum hætti ásamt dularfullum kistli þegar hún var ungabarn. Þegar tveir skuggalegir næturgestir birtast og ræna kistlinum ákveður Soffía að taka málin í eigin hendur og sanna í leiðinni að hún sé hin eina sanna sjóræningjaprinsessa. Alls...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert