Author: lensherra

Barnaleikhúshátíð í Færeyjum

Barnaleikhúshátíðin Klakkur verður haldin í Klakksvík í Færeyjum dagana 29. júní til 5. júlí í sumar. Til hennar er boðið leiksýningum barna frá 9 til 14 ára, að hámarki 60 mín. að lengd. Sýningarnar verða frá öllum Norðurlöndunum ásamt Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Leikhóparnir fá frítt uppihald fyrir 10 börn og 2 fullorðna meðan á hátíðinni stendur. Ferðakostnað verða hóparnir að greiða sjálfir. Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi pdf-skjali . Þar er einnig að finna umsóknareyðublað sem áhugasamir eru beðnir að fylla út og senda á netfangið info@leiklist.is fyrir 20. mars nk. ATH. EKKI TIL FÆREYJA!!! Ef fleiri en...

Sjá meira

Tenórinn syngur sitt síðasta

Leikfélag Akureyrar og hinn ástæli leikari og tenór Guðmundur Ólafsson bjóða upp á leiksýninguna Tenórinn í Samkomuhúsinu laugardagskvöldið 14. mars kl. 20:00. Eftir 6 ára sýningartíma Tenórsins er Guðmundur á því að "Nú sé mál að linni" og því mun Tenórinn „syngja sitt síðasta“ í Samkomuhúsinu á Akureyri laugardagskvöldið 14. mars en þar þreytti Guðmundur einmitt frumraun sína í atvinnuleikhúsi haustið 1974. Guðmundur Ólafsson er höfundur og annar leikara Tenórsins sem var frumsýndur á Ólafsfirskum Berjadögum í ágústmánuði 2003 og síðar það sama haust  í Iðnó þar sem sýningin var á fjölunum  í tvö leikár; auk þess var verkið...

Sjá meira

Leikfélag Rangæinga sýnir Orrustuna á Laugalandi

Síðastliðinn laugardag, þann 7. mars, frumsýndi Leikfélag Rangæinga leikritið Orrustan á Laugalandi í Njálsbúð í Landeyjum. Leikstjóri er Guðrún Halla Jónsdóttir. Um geysilega vel heppnaða sýningu var að ræða í alla staði og gerðu þeir  110 frumsýningargestir sem í Njálsbúð voru góðan róm að sýningunni. Næsta sýning er fyrirhuguð laugardaginn 14. mars og er þar um að ræða hátíðarsýningu í tilefni 30 ára afmælis félagsins. Búið er að bjóða hinum ýmsu gestum til sýningarinnar svo sem þingmönnum, sveitastjórnarmönnum, stofnfélögum leikfélagsins og leikurum  Leikfélags Austur Eyfellinga sem voru í uppsetningu þessa verks  1970. Einnig hefur forseti Íslands þegið boð á...

Sjá meira

Leikdeild Umf. Vöku sýnir Páskahretið

Leikdeild Umf. Vöku, í samstarfi við Ungmennafélögin Baldur og Samhygð, frumsýndi föstudaginn 27. febrúar gamanleikritið Páskahret eftir Árna Hjartarson, í leikstjórn Jóns Stefáns Kristjánssonar. Leikritið gerist í skála í Hrafntinnuskeri en þar hefur hópur ólíkra einstaklinga leitað gistinar eftir að hafa lent í miklu illviðri. Innan skamms fara óvæntir hlutir að gerast, gamlar erjur koma fram á yfirborðið og illvirki er framið í skálanum. Óútskýranlegir hlutir gerast og taugatitringur vex hjá skálabúum meðan Víkingasveit Lögreglunnar og Björgunarsveitir keppast við að verða fyrstir á staðinn og upplýsa málið. 17 leikarar taka þátt í sýningunni, en í heild eru það um...

Sjá meira

Stundum og stundum ekki frumsýnt í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir gamanleikinn Stundum og stundum ekki eftir Arnold og Bach í leikstjórn Sögu G. Jónsdóttur fimmtudaginn 5. mars kl. 20:30 á Melum í Hörgárdal.Stundum og stundum ekki var fyrst frumsýnt á Íslandi í Iðnó árið 1940. Á þeim tíma þótti verkið fara langt út yfir velsæmismörk sökum fáklæddra leikara en ekki þótti við hæfi að sjá í bert hold á sviði. Verkið var meira að segja bannað um tíma. Rúmum þrjátíu árum síðar, árið 1972, var stykkið sýnt í eilítið breyttri útgáfu hjá LA við góðan orðstír. Í þessari uppsetningu hjá Leikfélagi Hörgdæla hefur textinn verið styttur...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert