Þrettándakvöld frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
Nemendaleikhús Lhí og Þjóðleikhúsið frumsýna gleðileik Shakespeares, Þrettándakvöld föstudaginn 13. mars. Þetta er sívinsæll gamanleikur sem gerist í Illiríu þar sem ástleitinn greifi fellir hug til meyjar af aðalsættum sem ekki vill þýðast nokkurn mann – því hún syrgir bróður sinn. Önnur systkin, skipreka frá fjarlægu landi, verða síðan til þess að stokka rækilega upp í félagslífi Illeríumanna með tilheyrandi misskilningi, ástarfléttum og brellum. Og í kringum alla hirðina dansar fíflið Fjasti. Útskriftarnemar leiklistardeildar LHÍ vinna ásamt leikurum Þjóðleikhússins undir leikstjórn Rafaels Bianciotto. Hann er þekktur fyrir óvenjulegar nálgunaraðferðir í leikhúsi, sem byggja einkum á grímuvinnu, commedia dell arte...
Sjá meira


