Óskar og bleikklædda konan á Litla sviðinu
Fimmtudaginn 5. mars kl. 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Litla sviðinu einleikinn Óskar og bleikklædda konan eftir Eric-Emmanuel Schmitt. Verkið fjallar um Óskar, tíu ára dreng sem þjáist af hvítblæði og bíður hins óhjákvæmilega á spítala. Sjálfboðaliði sem kemur reglulega í heimsóknir hvetur Óskar til þess að skrifa bréf til Guðs og skapa sér þannig framtíð sem ósennilegt er að hann muni lifa. Leikritið er í senn einstaklega fallegt, fyndið og hjartnæmt. Það er Margrét Helga Jóhannsdóttir sem flytur einleikinn en það hefur hún áður gert með eftirminnilegum hætti í hlutverki Sigrúnar Ástrósar sem sló heldur betur í gegn. Leikstjóri...
Sjá meira


