Spennandi Páskahret
Guðmundur Karl Sigurdórsson brá sér í Þingborg og lætur vel af því sem hann sá: Ungmennafélögin í Flóahreppi setja nú í þriðja sinn á svið leiksýningu í sameiningu. Fyrir valinu varð verkið Páskahret eftir Árna Hjartarson, verk sem hentar leikhópnum ágætlega með mörgum sérstökum persónum og skemmtilegri atburðarrás. Happafengur var félögunum að fá Jón Stefán Kristjánsson til þess að stýra snjóbílnum í þessari ferð því útkoman er stórskemmtileg og er þáttur leikstjórans drjúgur í að ná því besta fram hjá ungum leikhópnum. Upprunalega er leikritið með söngvum, sem felldir hafa verið út, án þess að það bitni nokkuð á...
Sjá meira


