Sjö gyðingabörn, leikrit fyrir Gaza í Borgarleikhúsinu
Sjö gyðingabörn leikrit fyrir Gaza, er nýtt 10 mínútna leikrit eftir Caryl Churchill, sem frumsýnt var í Royal Court leikhúsinu í London í febrúar síðastliðnum. Churchill skrifaði leikritið nú í janúar í kjölfar átakanna á Gaza. Verkið birtir okkur sjö svipmyndir sem eiga sér stað á mismunandi tímum í sögunni. Höfundurinn setur þau skilyrði fyrir sviðsetningu verksins að aðgangur sé ókeypis og að eftir hverja sýningu verði söfnun. Allt fé sem safnast rennur beint til læknishjálpar á Gaza. Það er fátítt að leikhús bregðist svo skjótt við heimsviðburðum en Borgarleikhúsið er þriðja leikhúsið sem setur verkið á svið. ...
Sjá meira


