Leiksýningar 2007-2008 í tölum
Í tilefni af alþjóða leiklistardeginum þann 27. mars nk. hefur Hagstofa Íslands sent frá sér frétt um leiksýningar leikhúsa og leikhópa leikárið 2007-2008. Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga nam ríflega 414 þúsundum á síðasta leikári, leikárinu 2007/2008. Þetta samsvarar því að hver landsmaður hafi sótt leiksýningu 1,3 sinnum á leikárinu. Gestum fækkaði nokkuð frá fyrra leikári leikárinu 2006/2007 eða um tæplega 25 þúsund gesti, sem samsvarar fækkun gesta um 5,7 af hundraði. Á síðasta leikári voru settar upp á fjalirnar 231 uppfærsla. Sýningar voru 3.339 talsins. Heildarfjöldi gesta leikhúsa, leikhópa og félaga á...
Sjá meira


