Author: lensherra

Þjóðleikur – stærsta leiklistarhátíð Íslandssögunnar

Stærsta leiklistarhátíð sem haldin hefur verið hérlendis fer fram á Egilsstöðum helgina 24.-26. apríl. Þar verða í boði 28 leiksýningar á vegum þrettán leikhópa ungs fólks sem allir hafa starfað undir merkjum Þjóðleiks, tilraunverkefnis á vegum fræðsludeildar Þjóðleikhússins og fleiri aðila, í vetur. Um 200 þátttakendur, víðsvegar að af Austurlandi koma saman á Egilstöðum og halda lokahátíð sína. Hóparnir hafa að undanförnu sett upp verk sín í heimabæjum sínum þar eystra, allt frá Vopnafirði til Hafnar í Hornafirði. Leikarar í sýningunum er á aldrinum 13-20 ára en stjórnendur þeirra hafa í vetur notið handleiðslu fagmanna frá Þjóðleikhúsinu. Eitt megin...

Sjá meira

Sýningar- og aðsóknarmet í Hörgárdalnum slegið

Leiksýningin Stundum og stundum ekki, sem Leikfélag Hörgdæla hefur verið að sýna að Melum í Hörgárdal frá því í byrjun mars, mun slá sýninga- og aðsóknarmet hjá leikfélaginu. Gamla sýningametið var 21 sýning á leikritunum Þrek og tár og Síldin kemur og síldin fer. Aðsóknarmet verður líka slegið, því nú þegar hafa um 1.800 manns séð sýninguna. Leikritið hefur verið sýnt 20 sinnum og ákveðið hefur verið að sýna það 5 sinnum til viðbótar vegna gríðarlegrar aðsóknar. Svo að segja uppselt hefur verið á nærri allar sýningar og ljóst er að 2.000 manna múrinn verður rofinn og rúmlega það. Þessar vinsældir hafa ekki ennþá sett...

Sjá meira

Kaþarsis – Örleikritahátíð í FSu

Næstkomandi þriðjudags- og miðvikudagskvöld 21. og 22. apríl verður haldin örleikritahátíð í FSu. Hátíðin er skipulögð af kennara og nemendum í áfanganum ÍSL 643 sem er valáfangi í bókmenntum. Leikritin eru öll samin og leikstýrð af nemendum áfangans, yfirlesin, greind og gagnrýnd af kennara og hópnum sem heild. Leikendur í verkunum eru nemendur sem nýlega tóku þátt í vel heppnaðri uppfærslu leikfélags NFSu á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Samtals verða fjórtán örleikrit sýnd víðsvegar um húsnæði skólans, sjö hvort kvöldið. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að áhorfendur færa sig á milli staða eftir ákveðinni leiðsögn. Örleikritahátíðin er...

Sjá meira

Gefðu Jéns séns hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Hörður S. Dan. skellti sér á sýningu Unglingadeildar Leikfélags Hafnarfjarðar „Gefðu Jens séns. Þetta er sýning byggð á spunavinnu sem unglingarnir hafa staðið í frá því í janúar. Endaði sú vinna með fjögurra vikna formfastari vinnu og er þessi sýning útkoma þess. Sagan sjálf, uppbygging hennar og innihald, var frekar sundurleit verð ég að segja. Mjög snemma hætti ég að spá í hvert þetta allt saman stefndi. Enda held ég að það hafi ekki verið tilgangurinn með þessu verki, nema bara að litlu leyti. Þó söguna hafi vantað þá hafði ég mjög gaman af, var þetta miklu frekar mörg...

Sjá meira

Málþing í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 19. apríl

Leikritið Ég heiti Rachel Corrie sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 19. mars síðastliðinn hefur vakið athygli á einu stærsta pólitíska málefni samtímans – deilu Ísraels og Palestínu. Sunnudaginn 19. apríl kl. 15-17 stendur Borgarleikhúsið fyrir málþingi um samtal leikhússins og áhorfandans. Á meðal framsögumanna eru foreldrar Rachelar, Craig og Cindy Corrie, en þau hafa haldið fyrirlestra víða um heim í þau sex ár sem liðin frá því dóttir þeirra lét lífið við sjálboðastörf í Palestínu. Dagskrá málþingsins:   Samtal leikhússins og áhorfenda – Magnús Geir Þórðarsson leikhússtjóri Borgarleikhússins opnar dagskrána og fjallar um hvernig leikhúsið kappkostar að eiga...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert