Author: lensherra

Stuttverkahátíðin Margt smátt 23. maí 2009

Nú er komið að 5. stuttverkahátíðinni okkar, Margt smátt, í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldið laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð.   Frestur til þess að tilkynna um þátttöku á hátíðinni er til föstudagsins 1. maí.   Senda skal Bandalaginu umsókn á eyðublaði sem hægt er að nálgast hér .Tekið skal fram að það er alls ekki skilyrði að um frumflutning á verki sé að ræða. Ef áhugi er fyrir að senda verk á hátíðina en ekkert ákveðið verk er...

Sjá meira

English: About BÍL

The Icelandic Amateur Theatre Association (Bandalag Íslenskra Leikfélaga) was founded in 1950. Its purpose is to safeguard the common interests of its members; the Icelandic Amateur Theatres and Clubs. It runs a service centre in Reykjavík where you can find, among other things, the largest and most accessible collection of playscripts, both original icelandic plays and foreign plays in icelandic translations. The center also imports and sells make-up and provides various other services both for the members and other theatres (amateur and professional), scools and virtually everyone interested in theatre. The Association has an ambitious education program. The Icelandic...

Sjá meira

Sjóræningjaprinsessan vinsæl

Uppselt hefur verið á fyrstu fimmtán sýningar á Sjóræningjaprinsessuna, nýtt íslenskt barna- og fjölskylduleikrit með söngvum sem Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir. Litlir og stórir, ungir sem gamlir og allt þar á milli hafa skemmt sér konunglega á sýningum og greinilegt að margir efnilegir sjóræningjar leynast í hópi áhorfenda þar sem þeir hafa eftir sýningar líst yfir áhuga á að ganga til liðs við Kaptein Gulltönn og áhöfn hans. Leikritið verður sýnt verður út aprílmánuð en þeim sem vilja bera sýninguna augun er ráðlagt að tryggja sér miða í tíma þar sem fullt er að verða á þær...

Sjá meira

Lokasýningar á Hinum illa dauðu

Nú um helgina verða loksýningar hjá Leikfélagi Keflavíkur á hryllingssöngleiknum Hin illa dauðu. Leikfélagið þurfti að leigja ýmsan tæknibúnað fyrir þessa sýningu og er leigutíminn útrunninn. Þetta verða því allra síðustu sýningar og lokatækifæri fólks til að sjá þetta frábæra verk sem hlotið hefur mikið lof gagnrýnenda. Sýningin tekur þátt i samkeppninni um áhugaverðustu áhugaleiksýningu ársins hjá Þjóðleikhúsinu og tilkynnt verður í byrjun maí hvaða sýning verður fyrir valinu. Leikfélagið mun að loknum þessum sýningum æfa upp leikritið Sex í sveit sem sýnt verður á einni stórri sýningu í Andrews Theater fyrir Flugger fyrirtækið þann 30. apríl nk. Eftir...

Sjá meira

Leikfélag Sauðárkróks með afmælissýningu

Í gær voru slétt 121 ár frá því að Leikfélag Sauðárkróks var stofnað en það var 13. apríl 1888. Þetta var níu árum áður en þeir stofnuðu leikfélag í Reykjavík. LS starfaði af miklum móð í tvo áratugi, en lagðist svo í dvala. Var endurreist árið 1941 og hefur í tæp sjötíu ár verið burðarásinn í blómlegu skagfirsku leiklistarlífi. Í ár er haldið uppá tímamótin með því að sýna á Sæluviku verkið Frá okkar fyrstu kynnum, eftir Jón Ormar og Guðbrand Ægi. Auk þess verður gefið út afmælisrit félagsins sem Unnar Ingvarsson hefur umsjón með. Frá okkar fyrstu kynnum...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert