Creature sýnt hjá LA og Þjóðleikhúsinu
Creature er nýtt verk eftir leikhúslistamanninn Kristján Ingimarsson, sem þekktur er fyrir að feta ótroðnar slóðir og nota líkamann á óvæntan og sérstæðan hátt í sýningum sínum. Sýningin var frumflutt í Husets Teater í Kaupmannahöfn en verður sýndur hjá Leikfélagi Akureyrar 1. og 2. maí og í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 14, 15, 16 og 17. maí. Creature er stórhættulegur og bráðfyndinn leikhúskonsert um sköpunarþörf manneskjunnar og þörf hennar fyrir að setja sjálfa sig á svið. Þetta er án efa persónulegasta sýning Kristjáns til þessa, þar sem hann kannar ýmis landamæri með aðferðum spunans og kemur okkur stöðugt á óvart....
Sjá meira


