Author: lensherra

Síðustu sýningar á Ufsagrýlum

Nú eru aðeins tvær sýningar eftir á Ufsagrýlum eftir Sjón í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Það er Lab Loki í samvinnu við Hafnarfjarðarleikhúsið sem setur verkið upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Síðustu tvær sýningarnar verða laugardaginn 13. mars. og fimmtudaginn 18. mars. kl. 20.00. Í Ufsagrýlum er tekið á málefnum líðandi sundar með aðferðum gróteskunnar og karnivalsins: “Góðu dagarnir sundruðu sálinni, afskræmdu líkamann, þurrkuðu út mörkin milli manna og drýsla. Á leynilegri sjúkrastofnun hefst endurhæfingin, leitin að nýrri manneskju með heilbrigða sál í hraustum líkama. En það getur verið erfitt að venja sig af gulláti og saurugum hugsunum, og ekki er víst...

Sjá meira

Þjóðleikhúsið frumsýnir Fíusól

Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn í Kúlunni nýtt leikrit eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um hina átta ára gömlu gleðisprengju – Fíusól. Það er ekki ofmælt að það sé mikill áhugi á leiksýningunni um Fíusól og nú þegar er orðið uppselt á allar sýningar fram í miðjan maí! Ástæðan fyrir þessum mikla spenningi liggur vitanlega í því að íslensk börn og foreldrar þeirra hafa fyrir margt löngu fallið fyrir ólíkindauppátækjum Fíusólar í þeim fjórum Fíusólarbókum sem þegar hafa komið út – og eru margverðlaunaðar og lofaðar. Í leikritinu býður Fíasól leikhúsgestum heim í hosiló og inn í hræðilega ruslahauginn sem er...

Sjá meira

Sýningar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.-15. ágúst

Þá liggur fyrir hvaða sýningar verða sýndar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.–15. ágúst nk. Dómnefnd valdi sýninguna Umbúðalaust hjá Leikfélagi Kópavogs, sem opnunarsýningu hátíðarinnar og sýningar Birting hjá Leikfélagi Selfoss og Vínland hjá Freyvangsleikhúsinu þar að auki, en þrjá íslenskar sýningar verða á hátíðinni þar sem Eistland sá sér ekki fært að senda fulltrúa. Sýningar á hátíðinni verða því eftirtaldar:DanmörkDunkel Paradeleikhópur Dunkelfolket, BrovstFinnlandLouhi and the Golden Girlleikhópur Youth Theatre FloppiFrakkland – CIFTALAVEURS DE CERVEAUX (Washers of Brains)leikhópur L´asse du Coin, EstoublonFæreyjarHavgirdleikhópur Royndin, Nólsoy(leikstjóri Ágústa Skúladóttir)ÍslandUmbúðalaustLeikfélag KópavogsOpnunarsýningÍslandBirtíngurLeikfélag SelfossÍslandVínlandFreyvangsleikhúsiðLitháenA ´LA MUSICALEleikhópur Druskininkai theatre NISANoregurShabbanaleikhópur Te-Nord, OslóRúmenía – CECIrish Poem for Violin...

Sjá meira

Leiklistarskóli Bandalagsins 2010

Árið 2010 markar tímamót í sögu Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga. Frá upphafi hefur skólinn átt aðsetur sitt að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal en núna á þessu fjórtánda starfsári verður skólinn fluttur um set og settur að Húnavallaskóla í Húnavatnshreppi. Eins og kunnugt er þá hefur það lengi verið markmið Bandalagsins að reyna að tryggja betur aðgengi fatlaðra að starfsemi skólans og nú höfum við fundið húsnæði sem við viljum láta á reyna.Húsabakkaskóli hefur verið hreiður og hjarta skólastarfsins frá upphafi og við tökum með okkur ríkulegar minningar um fallegt umhverfi, góðan anda, vináttu og stuðning. Um leið er það tröllatrú...

Sjá meira

Rose Bruford College með inntökupróf

Einn af fremstu leiklistar- og leikhússkólum í Evrópu, Rose Bruford College of Theatre & Performance verður með inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu Húsinu, Reykjavík, 20. og 21. mars, fyrir inngöngu í september 2010. Skólinn býður upp á faglegt nám á öllum hliðum leikhúss. Skólinn býður upp á nám til BA gráðu í: Leiklist(Acting)Leiklist með áherslu á Evrópska leikhúsaðferð (European Theatre Arts)Leiklist & Tónlist (Acting Musicianship)Leiklist með áherslu á Ameríska leikhúsaðferð (American Theatre Arts)Leikmynda & búningahönnun (Theatre Design)Hljóðmyndahönnun (Performance Sound)Ljósahönnun (Lighting Design)Skapandi ljósastýring (Creative Lighting Control)Búningagerð (Costume Production)Sviðsstjórn (Stage Management)Leikmynda/Leikmunagerð (Scenic Arts)Nánari upplýsingar og skráning:sue.mctavish@bruford.ac.ukwww.bruford.ac.ukRose...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert