Author: lensherra

Sýningar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.-15. ágúst

Þá liggur fyrir hvaða sýningar verða sýndar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.–15. ágúst nk. Dómnefnd valdi sýninguna Umbúðalaust hjá Leikfélagi Kópavogs, sem opnunarsýningu hátíðarinnar og sýningar Birting hjá Leikfélagi Selfoss og Vínland hjá Freyvangsleikhúsinu þar að auki, en þrjá íslenskar sýningar verða á hátíðinni þar sem Eistland sá sér ekki fært að senda fulltrúa. Sýningar á hátíðinni verða því eftirtaldar:DanmörkDunkel Paradeleikhópur Dunkelfolket, BrovstFinnlandLouhi and the Golden Girlleikhópur Youth Theatre FloppiFrakkland – CIFTALAVEURS DE CERVEAUX (Washers of Brains)leikhópur L´asse du Coin, EstoublonFæreyjarHavgirdleikhópur Royndin, Nólsoy(leikstjóri Ágústa Skúladóttir)ÍslandUmbúðalaustLeikfélag KópavogsOpnunarsýningÍslandBirtíngurLeikfélag SelfossÍslandVínlandFreyvangsleikhúsiðLitháenA ´LA MUSICALEleikhópur Druskininkai theatre NISANoregurShabbanaleikhópur Te-Nord, OslóRúmenía – CECIrish Poem for Violin...

Sjá meira

Leiklistarskóli Bandalagsins 2010

Árið 2010 markar tímamót í sögu Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga. Frá upphafi hefur skólinn átt aðsetur sitt að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal en núna á þessu fjórtánda starfsári verður skólinn fluttur um set og settur að Húnavallaskóla í Húnavatnshreppi. Eins og kunnugt er þá hefur það lengi verið markmið Bandalagsins að reyna að tryggja betur aðgengi fatlaðra að starfsemi skólans og nú höfum við fundið húsnæði sem við viljum láta á reyna.Húsabakkaskóli hefur verið hreiður og hjarta skólastarfsins frá upphafi og við tökum með okkur ríkulegar minningar um fallegt umhverfi, góðan anda, vináttu og stuðning. Um leið er það tröllatrú...

Sjá meira

Rose Bruford College með inntökupróf

Einn af fremstu leiklistar- og leikhússkólum í Evrópu, Rose Bruford College of Theatre & Performance verður með inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu Húsinu, Reykjavík, 20. og 21. mars, fyrir inngöngu í september 2010. Skólinn býður upp á faglegt nám á öllum hliðum leikhúss. Skólinn býður upp á nám til BA gráðu í: Leiklist(Acting)Leiklist með áherslu á Evrópska leikhúsaðferð (European Theatre Arts)Leiklist & Tónlist (Acting Musicianship)Leiklist með áherslu á Ameríska leikhúsaðferð (American Theatre Arts)Leikmynda & búningahönnun (Theatre Design)Hljóðmyndahönnun (Performance Sound)Ljósahönnun (Lighting Design)Skapandi ljósastýring (Creative Lighting Control)Búningagerð (Costume Production)Sviðsstjórn (Stage Management)Leikmynda/Leikmunagerð (Scenic Arts)Nánari upplýsingar og skráning:sue.mctavish@bruford.ac.ukwww.bruford.ac.ukRose...

Sjá meira

Söngleikur um Svein skotta

Æfingar eru hafnar á nýju íslensku leikverki, Síðasti dagur Sveins skotta, en verkið verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Að verkinu standa Kómedíuleikhúsið á Ísafirði og Lýðveldisleikhúsið í Reykjavík en það er ljóðleikur eða söngdans um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín. Síðasti dagur Sveins skotta er svört kómedía þar sem jafngild eru leiklist, tónlist og dans. Leikurinn gerist á síðasta ævidegi Sveins þar sem hann bíður aftöku sinnar og rifjar...

Sjá meira

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti

Laugardaginn 13. mars frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren, í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta þessa sýningu verða að veruleika og var leikfélagið í góðu samstarfi við grunnskólann í Hveragreði við smíði á leikmunum. Einnig láta nokkrir nemendur skólans ljós sitt skína í sýningunni. Með helstu hlutverk fara Dagbjartur Kristjánsson sem Emil, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir sem Ída, Gunnar Þór Jónsson...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert