Author: lensherra

Aðalfundur og Leiklistarskóli Bandalags ísl. leikfélaga 2010

Þann 15. apríl nk. rennur út frestur til að skrá sig bæði á aðalfundinn í Sveinbjarnargerði og í Leiklistarskólann að Húnavöllum.Sjá nánar um aðalfundinn: https://www.leiklist.is/allar-frettir/adalfundur-2010Sjá nánar um Leiklistarskólann:  https://www.leiklist.is/skolinn/leiklistarskoli-bandalagsins-2010Þeir sem nú þegar hafa skráð sig í skólann en ekki staðfest umsóknina með greiðslu staðfestingargjalds eru beðnir að gera það nú þegar – að öðrum kosti er ekki hægt að halda plássinu fyrir...

Sjá meira

Bráðskemmtilegur leikur á Melum í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla Lífið liggur við Leikstjóri: Saga JónsdóttirÞað var sérkennilegt að ganga inn í gamla samkomuhúsið á Melum s.l. laugardagskvöld. Gengið var inn á gömlu senuna og búið að útbúa svið á miðju dansgólfinu með þrjár sætaraðir á þrjá vegu. Góð hugmynd sem gekk fullkomlega vel upp, svo vel að undarlegt er að engum hafi dottið þetta í hug fyrr. Sem fyrr hjá Leikfélagi Hörgdæla var margt góðra áhugaleikara sem náð hafa undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur að skapa skörp skapgerðareinkenni hjá persónum leiksins. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal skrifar um sýningu Leikfélags Hörgdæla Bæði kunnugleg...

Sjá meira

Glefsur hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Nú er æfingum að ljúka á vordagskrá Leikfélagsins. Um er að ræða ellefu einþáttunga sem félagsmenn sjálfir hafa skrifað. Efni leikritanna er fjölbreytt og spannar allt frá léttu gríni til djúpra meininga.  Uppfærslan nefnist Glefsur en höfundar eru þau María Guðmundsdóttir og Pétur R. Pétursson. Leikstjórar eru þær Bóel Hallgrímsdóttir, Guðný María Jónsdóttir og Ólöf A. Þórðardóttir. Glefsur verða frumsýndar föstudaginn 9. apríl klukkan 21 í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Samnefnari einþáttunganna er að þeir glefsa í áhorfandann og skilja oftar en ekki spurningar frekar en svör. Sýningar verða síðan á sunnudögum í vor. Hægt er að panta miða í...

Sjá meira

Dúfurnar frumsýndar hjá LR

Dúfurnar eftir David Gieslemann í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur verður frumsýnt á Nýja sviðinu laugardaginn 10. apríl. Höfundurinn verður viðstaddur frumsýninguna í Borgarleikhúsinu. Er þetta önnur heimsókn Gieselmanns til landsins en fyrri heimsókn hans var í tengslum við frumsýningu á verki hans Herra Kolbert sem Leikfélag Akureyrar sýndi árið 2006. Herra Kolbert hefur farið sigurför um heiminn og verið sett upp beggja vegna Atlandshafsins við gríðarlega góðar undirtektir. David Gieselmann er fæddur í Köln í Þýskalandi árið 1972. Hann stundaði nám í leikritun við Listaháskólann í Berlín á árunum 1994 til 1998. Honum var boðið að starfa í Royal Court-leikhúsinu...

Sjá meira

Aukasýning á Horn á höfði á Akureyri

Laugardaginn 10. apríl kl. 14 verður aukasýning á barnaleikritinu Horn á höfði sem GRAL sýndi við góða aðsókn um Páskana. Leikritið er sýnt í Rýminu. Verkið var frumsýnt sl. haust í Grindavík við frábærar undirtektir. Áhorfendur og gagnrýnendur voru sammála um að þetta væri eitt skemmtilegasta barnaleikrit ársins. Tónlistin er eftir Akureyringinn Villa Naglbít. Horn á höfði  fjallar um tvo vini, Björn og Jórunni. Björn litli vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann fær Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér að komast að ástæðunni. Í leit sinni að sannleikanum renna þau inn í æsilega atburðarrás á mörkum ævintýris og veruleika...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert