Talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins
Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði, sl. helgi, urðu talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins. Tveir stjórnarmenn, þeir Ingólfur Þórsson, Freyvangsleikhúsinu, og Hörður Sigurðarson, Leikfélagi Kópavogs, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Hugleik, ákvað að hætta í stjórn eftir árs setu þar. Í stað þeirra voru kosin í stjórn, Ólöf Þórðardóttir, Leikfélagi Mosfellssveitar, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Halaleikhópnum og Halldór Sigurgeirsson, Freyvangsleikhúsinu. Einnig var Guðfinna Gunnarsdóttir, Leikfélagi Selfoss, endurkjörin. Nýr inn í varastjórn kom Bernharð Arnarsson, Leikfélagi Hörgdæla en Halla Rún Tryggvadóttir, Leikfélagi Húsavíkur og Hjalti Stefán Kristjánsson, Hugleik, voru...
Sjá meira


