Aukasýningar á Munaðarlaus á Norðurpólnum
Fáar leiksýningar hafa vakið meiri lukku á árinu og komið meira á óvart en sýning leikfélagsins Munaðarleysingjar á leikritinu Munaðarlaus e. Dennis Kelly í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar. Sýningin var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og í kjölfar þess var henni boðið að vera óvissusýning ársins hjá Leikfélagi Akureyrar. Hópurinn lét sér þó ekki nægja að sýna bara á Akureyri heldur fór einnig á Vopnafjörð og Egilsstaði en á öllum þessum stöðum var sýnt fyrir fullu húsi við mjög góðar undirtektir. Hópurinn varð síðan að hætta sýningum vegna annarra verkefna en hefur nú...
Sjá meira


