Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Apríl
Fimmtudaginn 30. apríl sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna sitt fjórða örverk um áráttur kenndir og kenjar. Örverkin sem öll eru kennd við mánuðinn sem þau eru flutt í, eru stuttar hugleiðingar um mannlega tilvist í Reykjavík dagsins í dag og eru hvert um sig frumsýnd síðasta fimmtudag í mánuði allt árið 2010. Apríl er sagður grimmastur mánaða og hugleiðir leikhópurinn þá grimmd sem fellst í áfellisdómum yfir þeim sem leiddu þjóðina til falls. Í stað þess að einblína á dóminn hefur leikhópurinn einsett sér að veita fyrirgefningunni rými. Áhugaleikhús atvinnumanna býður fólki að taka þátt í einskonar friðþægingarathöfn sem felst í...
Sjá meira


