Author: lensherra

Síðustu sýningar á Herra Potti og ungfrú Lok

Enn gefst tækifæri til að sjá “Herra Pott og ungfrú Lok” sem frumsýnd var í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu siðasta laugardag. Síðustu sýningar eru nú helgina 5. og 6. júní kl. 13 og 15. Hér er um heimsfrumsýningu á ræða á tónlist eftir Bohuslav Martinu og sögu Chisthophe Garda sem í fyrsta sinn er sýnt í sviðsuppfærslu á Íslandi fyrir tilstilli Óperarctic félagsins. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir Veröld herra Potts og ungfrúar Loks er allt í senn spennandi, undursamleg og heillandi öllum börnum allt frá þriggja ára til hundrað og þriggja. Tónævintýrið um herra Pott og ungfrú Lok er draumur...

Sjá meira

Leikfélag Ölfuss með tvö frumsamin útvarpsleikrit

Helgina 4.- 6. júní eru Hafnardagar í Þorlákshöfn og mikið um dýrðir. Af því tilefni verður opið hús hjá Leikfélagi Ölfuss í litla húsinu við Hafnarskeið á laugardaginn frá kl. 13-18. Húsinu hefur verið breytt í franskt kaffihús, Café Balance og fyrir utan verður listasmiðja (brúðuleikhúsgerð) og andlitsmálun fyrir börn. Haldin var samkeppni um nafn á húsið og verður skilti afhjúpað á laugardaginn þar sem vinningstillagan verður kynnt. Leikfélag Ölfuss réðist í gerð útvarpsleikrita í tilefni Hafnardaga þar sem í tengslum við þá er starfrækt útvarpsstöð í bænum. Samin voru tvö stutt leikrit, annars vegar ævintýrið Heiðin fagra eftir...

Sjá meira

Sýning tileinkuð sögu leiklistar í Hafnarfirði

Leikminjasafnið hefur samstarf við Byggðasafn Hafnarfjarðar um sýningu um leiklist í Hafnarfirði sem verður opnuð á Björtum dögum, föstudaginn 4. júní kl 17 í Góðtemplarahúsinu að Suðurgötu 7. Í Hafnarfirði hefur verið leikið í meira en 130 ár. Þar hafa bæði starfað áhugaleikfélög og atvinnuleikhús, auk þess sem ýmsir þjóðkunnir leikarar eru hafnfirskir að uppruna eða hafa einhvern tímann tyllt niður fæti á hafnfirskum leiksviðum. Á nítjándu öld urðu Hafnarfirðingar flestum, ef ekki öllum, fyrri til að koma sér upp leikhúsi og síðar fékk Leikfélag Hafnarfjarðar ágæta aðstöðu í Bæjarbíói. Þá hefur löngum verið mikið leikið í skólum bæjarins,...

Sjá meira

Útsending fréttabréfa

Á sumrin hægist mjög um í leiklistarheiminum eins og flestir vita og minna um fréttnæma atburði. Af þeim sökum verða útsendingar fréttabréfsins því óreglulegar á tímabilinu 1. júní til 30. ágúst. Af gefnu tilefni skal þeim sem hafa skráð sig á póstlista en ekki fengið fréttabréf bent á að STAÐFESTA þarf skráninguna. Það er gert með þvi að smella á á viðeigandi tengil í tölvupósti sem sendur er á uppgefið netfang. Athugið að pósturinn getur hafa lent í ruslsíunni. Ef pósturinn finnst ekki er sjálfsagt mál að skrá sig bara aftur....

Sjá meira

Hugleikur gefur Rokklag á netinu

Hugleiksmenn fóru í stúdíó fyrir nokkru og tóku upp lag úr sýningunni Rokki, enda varla annað hægt þar sem verkið fjallar ekki síst um hljómsveitir og meikdrauma. 27 heitir lagið (eða XXVII ef nördatilhneygingum textahöfundar fá að ráða) og fjallar um nokkur helstu rokkgoð sögunnar sem öll dóu á því aldursári. Þrátt fyrir svartan húmor í textanum er boðskapurinn engu að síður jákvæður og myndi sóma sér vel sem lokalag í væminni Disneymynd, ef það kompaní ákvæði að gera örlögum Morrison, Hendrix, Joplin og Cobain skil. Lagið 27 er komið í hendur allra helstu útvarpsstöðva landsins og hefur þegar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert