Author: lensherra

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Hans klaufa

Laugardaginn 29.maí kl 16:00, frumsýnir Leikhópurinn Lotta fjölskylduleiksýninguna Hans klaufa í Elliðarárdalnum. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Í framhaldi af frumsýningunni mun Leikhópurinn Lotta ferðast um landið með Hans klaufa. Sýndar verða tæplega 80 sýningar á fleiri en 50 stöðum um allt land. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með feldu. Norn hefur komið þangað í...

Sjá meira

Faust kveður Borgarleikhúsið en æfingar hafnar á Enron

Síðasta sýning Borgarleikhússins og Vesturports á Faust verður næstkomandi laugardag 29. Maí. Nú kveður sýningin Ísland og heldur í sumarlok til London þar sem hún verður frumsýnd í Young Vic leikhúsinu vinsæla í október. Sýningin verður kl. 16 svo spenntir Eurovision áhugamenn þurfa ekki að missa af neinu. Þeir geta bæði notið stórkostlegrar uppsetningar á Faust og fylgst með Heru heilla Evrópu. Þessi uppsetning Borgarleikhússins og Vesturports hlaut mikið lof bæði gagnrýnenda og áhorfenda þegar verkið var frumsýnt á Stóra sviðinu í janúar síðastiðnum og hefur verið sýnt fyrir fullu húsi frá frumsýningu. Sýningin verður hluti af hátíðardagskrá Young...

Sjá meira

Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Maí

Í dag, fimmtudaginn 27. maí kl. 12:30, sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna Maí, örverk um áráttur, kenndir og kenjar og verður það sýnt í beinni útsendingu á vefsíðunni www.herbergi408.is frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð.  Leikstjóri er Steinun Knútsdóttir og leikari er Orri Huginn Ágústsson. Áhugaleikhúsið veltir nú fyrir sér hvernig garðurinn okkar kemur undan vetri og hvernig best sé að undibúa jarðveginn fyrir framtíðina.  Hvað er illgresi? Er sviðin jörð ákjósanleg til ræktunar? Hvort á ég að kjósa einærar eða fjölærar plöntur? Verkið er fimmta örverkið af 12 sem Áhugaleikhúss atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum,...

Sjá meira

Miðasala hafin á Rokk í Þjóðleikhúsinu

Nú er hafin miðasala á Athyglisverðastu áhugaleiksýningu ársins sem er að þessu sinni Rokk frá Hugleik í Reykjavík. Sýningin verður fimmtudaginn 10. júní en verkið hefur verið sýnt fyrir troðfullu húsi hjá Hugleik undanfarið. Sýningin í Þjóðleikhúsinu er því síðasti séns til að upplifa Rokkið. Höfundar eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og Þórarinn Stefánsson. Eggert Hilmarsson semur tónlist en leikstjórar eru Hulda B. Hákonardóttir og Þorgeir Tryggvason. Rokk fjallar um tvær hljómsveitir sem deila með sér æfingahúsnæði. Eins og gefur að skilja koma upp ýmsir árekstrar og flækjur, enda böndin bæði metnaðargjörn og einstaklingarnir misflinkir í...

Sjá meira

Aukasýningar 39 þrepum í Íslensku óperunni

Fjöldi manns sótti sýningar LA helgina 7,-9. maí í Íslensku óperunni. Það var frábær stemmning, mikið hlegið og dynjandi fagnaðarlæti í lok sýninga. Vegna fjölda áskorana – og fyrir þá sem ekki komust þá helgi – verða  aukasýningar á  39 þrepum í Íslensku óperunni  helgina 21.-24. maí. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir. Leikfélag Akureyrar frumsýndi gamanleikinn 39 þrep í janúar sl. Uppselt hefur verið á nær 50 sýningar norðan heiða og gagnrýnendur á einu máli; „Stórkostleg sýning“. Í þessum óborganlega gamanleik fara 4 leikarar á kostum í  139 hlutverkum. Breski háðfuglinn Patrick Barlow gerir leikgerðina og byggir hana á...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert