Author: lensherra

Verðlaunahafar á Grímuhátíðinni

Uppskeruhátíð sviðslistanna á Íslandi, Gríman, var haldin miðvikudaginn 16. júní 2010 í Þjóðleikhúsinu og í beinni útsendingu á Stöð 2. Á hátíðinni voru Grímuverðlaunin veitt í áttunda sinn í alls 17 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands, sem einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Árni Tryggvason hlaut.Sýning ársins var valin leiksýningin Jesús litli í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur. Sýningin var frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins þann 20. nóvember 2009. Höfundar verksins, þau Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson hlutu verðlaun sem leikskáld árins. LEIKSKÁLD ÁRSINSBenedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra...

Sjá meira

Gaggað í grjótinu

Nýtt íslenskt leikrit „Gaggað í grjótinu· verður frumsýnt í Melrakkasetrinu í Súðavík 16. júní. Leikurinn er sérstaklega saminn fyrir Melrakkasetrið en safnið var opnað við hátíðlega athöfn fyrir skömmu og þar er sögð saga refsins sem hefur lifað lengur en elstu menn muna. Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands. Í „Gaggað í grjótinu“ fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt...

Sjá meira

Grímuhátíðin 2010

Uppskeruhátíð sviðslista, Grímuhátíð Leiklistarsambands Íslands, verður haldin í áttunda sinn miðvikudaginn 16. júní í Þjóðleikhúsinu. Tilnefningar voru kunngjörðar í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 4. júní sl. Verðlaunahátíðin, sem jafnframt er uppskeruhátíð sviðslistanna, var fyrst haldin árið 2003 og hefur Leiklistarsamband Íslands staðið fyrir hátíðinni árlega allar götur síðan. Aðildarfélög sambandsins eru leikhús, sviðslistahópar, fagfélög og stofnanir innan greinarinnar. Veitt verða verðlaun fyrir leikárið 2009-10 í alls sautján flokkum. Auk þess verða áhorfendaverðlaun veitt þeirri sýningu sem áhorfendum þótti bera af sem sýning ársins. Kosning stendur yfir á www.griman.is. Jafnframt verða heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands veitt þeim listamanni er skilað hefur framúrskarandi ævistarfi...

Sjá meira

Leikfélag Vestmannaeyja 100 ára!

Leikfélag Vestmannaeyja fagnar 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Af því tilefni kemur félagið til höfuðborgarinnar helgina 11. og 12. júní og sýnir leikritið „Fullkomið brúðkaup“ eftir Robin Hawdon í þýðingu Arnar Árnasonar og í leikstjórn Ara Matthíassonar. Sýningar verða í Loftkastalanum föstudaginn 11. júní kl 20.00 og laugardaginn 12. júní kl 18.00. Miðapantanir eru í síma 897 8940. Sýningin hefur fengið mjög góðar viðtökur í Vestmannaeyjum og eru Reykvíkingar og nærsveitamenn hvattir til að láta hana ekki fram hjá sér fara.Hér er hægt að sjá myndbút úr verkinu: http://www.youtube.com/watch?v=1XdahLGtZyUEinnig er leikfélagið með fésbókarsíðu fyrir...

Sjá meira

Rokk – áhugaleiksýning ársins sýnd 10. og 11. júní

Leikfélagið Hugleikur sýnir leikritið Rokk í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins fimmtudaginn 10. og föstudaginn 11. júní en sýningin var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins leikárið 2009-2010. Aðeins þessar tvær sýningar verða á Rokki í Þjóðleikhúsinu. Tónlist skipar vitaskuld stóran sess í sýningunni og er hún verk Eggerts Hilmarssonar, sem er einn af meðlimum Ljótu hálfvitanna. Það sama má segja um Þorgeir Tryggvason sem leikstýrir Rokki ásamt Huldu B. Hákonardóttur. Rokk fjallar um tvær hljómsveitir sem deila með sér æfingahúsnæði. Eins og gefur að skilja koma upp ýmsir árekstrar og flækjur, enda böndin bæði metnaðargjörn og einstaklingarnir misflinkir í mannlegum samskiptum....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert