Author: lensherra

Leikfélagið Sýnir sýnir Allir komu þeir aftur á artFart í ágúst.

Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem starfar á landsvísu. Það var stofnað árið 1997 af hópi fólks sem hafði verið á fyrstu námskeiðum Leiklistarskóla Bandalags Íslenskra Leikfélaga. Hópurinn að þessu sinni æfir nú af kappi, undir leiðsögn Aldísar Davíðsdóttur, leikritið Allir komu þeir aftur í Elliðárdalnum í Indiánagili. Verkið sem er byggt lauslega á leikritinu Widows eftir Ariel Dorfman og Tony Kushner, er einnig partur af BA ritgerð Aldísar en hún kemur til með að útskrifast úr Rose Bruford Collage í London árið 2011. Verkið er bæði sýnt ogt æft úti, þar sem áherslan er lögð á leikarann að aðlagast...

Sjá meira

Þjónustumiðstöðin lokar frá 8.-17. ágúst

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík verður lokuð frá og með mánudeginum 8. ágúst vegna NEATA-leiklistarhátíðarinnar á Akureyri. Opnað verður aftur kl. 9.00 þriðjudaginn 17. ágúst.Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 13.00 föstudaginn 6. ágúst til að verða afgreiddar fyrir...

Sjá meira

Alþjóðleg leiklistarhátíð áhugamanna í Tromsö 2011

Alþjóðlega áhugaleikhúsráðið, IATA, skipuleggur reglulega leiklistarhátíðir víðs vegar um heiminn, sú síðasta var haldin í Mónakó 2009. Næsta IATA-hátíð verður haldin í Tromsö í Noregi dagana 14. til 24. júlí 2011. Bandalag íslenskra leikfélaga hefur sótt um að senda íslenska sýningu á hátíðina og auglýsir hér með eftir leikfélögum sem hafa áhuga á að taka þátt. Ef fleiri en einn hópur sækir um verður skipuð dómnefnd sem velur milli umsækjenda. Umsóknir þurfa að berast Bandalaginu fyrir 20. ágúst 2010 og þurfa upptökur af sýningunum að fylgja ásamt almennum upplýsingum um umsækjanda og sýningu. Ekki verða útbúin sérstök umsóknareyðublöð. Sýningarlengd...

Sjá meira

Fröken Fix sýnir Ómynd í ágúst

Leikhópurinn Fröken Fix var stofnaður vorið 2009 af Aldísi Davíðsdóttur og Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Aðalstefna Fröken Fix er að sjá um allt sem við kemur sýningum sjálfar. Þær leikstýra, leika, sjá um leikmynd, búninga og allt sem mögulega tengist sýningum. Tvíeykið vann að uppsetningu leikritsins Bergmál hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar sem sýnt var í ágústmánuði 2009 og fengu þá aðstoð karlleikarans Halldórs Magnússonar sem lék í verkinu. Nú í sumar mun leikhópurinn bæta enn frekar við sig og hafa sjálfar skrifað handrit að nýju íslensku verki. Verkið ber nafnið Ómynd og verður frumsýnt á sviðslistahátíðinni ArtFart í ágúst og einnig...

Sjá meira

Ari Matthíasson nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins

Starf framkvæmdastjóra við Þjóðleikhúsið var auglýst laust til umsóknar í lok maímánaðar og rann umsóknarfrestur út þann 14. júní síðastliðinn.  Tuttugu og fimm umsóknir bárust, en niðurstaða um ráðningu liggur fyrir og mun Ari hefja störf þegar leikhúsið tekur aftur til stafa að loknu sumarleyfi. Ari er menntaður leikari, með BFA gráðu í leiklist frá Leiklistarskóla Íslands, MBA gráðu í stjórnun og rekstri frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Ari starfaði sem leikari í fjölda ára og tók meðal annars þátt í um 40 uppfærslum í atvinnuleikhúsum, mest með Leikfélagi Reykjavíkur, þar sem...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert