Author: lensherra

Leikfélag Reyðarfjarðar sýnir Stríðið okkar

Í tilfefni af því að 70 ár eru líðin síðan breskur her sté á land í Reyðarfirði þann 1. júlí, frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar leik- og söngdagskrá sem hlotið hefur nafnið Stríðið okkar. Þar er blandað saman stuttum leiknum þátt, skrifuðum af leikstjóranum Ármanni Guðmundssyni, og tónlist frá Síðari heimstyrjöldinni. Tónlistin er flutt af kirkjukór Reyðarfjarðarkirkju ásamt fimm manna hljómsveit, undir tónlistarstjórn Gillian Haworth. Einungis verða þrjár sýningar á Stríðinu okkar, 1. og 2. júlí kl. 20.30 og laugardaginn 3. júlí kl. 15.00. Þann 1. júlí 1941 sigldi breskt herskip inn Reyðarfjörð og setti á land herflokk sem hófst þegar...

Sjá meira

Leiklistarstarfsemi í Hafnarfirði – tilboð óskast

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum frá leikfélögum/leikhópum um rekstur leikhúss að Strandgötu 50 í Hafnarfirði.Hafnarfjarðarbær mun leggja umsækjendum til húsnæði og er leigutími frá 1. september 2010 – 31. desember 2013.  Um er að ræða 743,4 fermetra atvinnuhúsnæði ætlað til leiksýninga og annarrar menningarstarfsemi. Í tilboði skal sérstaklega gera grein fyrir markaðs- og  rekstraráætlunum sem og fyrirhugaðri starfsemi í húsinu og framtíðaráformum.  Umsóknir verða metnar á grundvelli eftirfarandi þátta:•    Að starfsemin efli menningarlíf í Hafnarfirði•    Að fjölþætt menningarstarfsemi sé í húsinu árið um kring með áherslu á leiklist•    Að höfðað sé til allra aldurshópa•    RekstraráformaNánari upplýsingar um...

Sjá meira

Tvö ný íslensk dansverk á Jónsvöku

Verkin Kyrrja og Þáðarhaft eftir Ragnheiði Bjarnarson verða sýnd í Nýlistasafninu laugardaginn 26. júní kl. 18.00 (Þráðarhaft) og sunnudaginn 27. júní kl. 14.00 (Kyrrja). Verkin eru sýnd í samstarfi við listhátíðina Jónsvöku sem fer fram næstkomandi helgi. Kyrrja var frumsýnt 20. maí sl. og Þráðarhaft var lokaverkefni Ragnheiðar frá Listaháskóla Íslands, en hún hefur sett verkið í nýjan búning og sýnir það þannig á laugardaginn. Ragnheiður Bjarnarson útskrifaðist af dansbraut Listaháskóla Íslands vorið 2009. Hún var í fyrsta útskriftarárgangnum frá brautinni.  Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ragnheiður unnið við danslistina í fjöldamörg ár. Hún er meðlimur í danshópnum Íslensku...

Sjá meira

Hin þráláta endurtekning og Kúreki

Höggmyndaleikverkið „Hin þráláta endurtekning og Kúreki“, eftir Pál Hauk Björnsson, verður sýnt frá 18. júní til 11. júlí nk. Verkið er hreyfanlegur listviðburður sem ýtir undir notkun öðruvísi dreifingarmiðla en fyrir eru á hinu hefðbundna myndlistarsviðii. Unnið er með mörk myndlistar og leikhúss, gjörninga og höggmynda, myndbandsverka, hljóðs og rauntímaatburða. Áhorfandinn er í miðju verksins, í beinni upplifun og í beinu samtali við verkið; verkið er ekki til án hans og hann ekki án þess. Verkið heldur áhorfendum föngnum í upplifuninni og ástandinu. Gestir eru sóttir í bifreið og þeim kastað rakleiðis inn í magnþrungna stemningu, sem er þó einungis...

Sjá meira

BESTA Fjallkonan 2010

Áhugaleikhús atvinnumanna efnir til keppninnar BESTA Fjallkonan 2010 fimmtudaginn 24. júní kl.12.30 í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna að Grandagarði 16. Kosin verður Besta fjallkonan og keppt er í fyndni, fegurð, frumleika og heiðarleika.Auglýst er eftir þátttakendum í keppnina sem er opin öllum, óháð kyni og aldri. Hefurðu til að bera fyndni, fegurð, frumleika og heiðarleika, áttu ígildi skautbúnings? Þá er þetta keppni fyrir þig. Fjallkonukeppnin eða JÚNÍ, örverk um það besta við Ísland, er hluti af Örverkaröð Áhugaleikhúss atvinnumanna og er hið sjötta í röðinni.  Örverk um áráttur, kenndir og kenjar er safn 12 örverka sem hvert um sig tekur...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert