Author: lensherra

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn sýnir Fiskar á þurru landi

Föstudaginn 22. október frumsýnir Leikfélagið Skagaleikflokkurinn Fiska á þurru landi eftir Árna Ibsen í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Sýningin hefst kl. 20 og er sýnt í Arctic-húsinu, Vesturgötu 119. Þetta er verk með undirtitilinn ólíkindagamanleikur og leikstjórinn fer skemmtilega leið í uppsetningunni, þar sem dansað er á línunni milli raunveruleikans og fáranleikans, en einnig er sótt í smiðju trúðleikara. Næstu sýningar verða:2. sýn. sunnudaginn 24. okt.3. sýn. þriðjudaginn 26. okt.4. sýn. föstudaginn 29. okt.5. sýn. sunnudaginn 31. okt.6. sýn. þriðjudaginn 2. nóvÞröstur Guðbjartsson leikstjóri hefur unnið með áhugaleik-húsum víða um land með dæmafáum árangri. Honum er einstaklega lagið að ná...

Sjá meira

Ný íslensk ópera frumsýnd

Ný íslensk ópera, Hlini, verður frumsýnd laugardaginn 23. október í Iðnó. Flytjendur eru nemendur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Höfundur texta og tónlistar er Þórunn Guðmundsdóttir, en þetta er þriðja óperan sem Tónlistarskólinn í Reykjavík setur upp eftir hana. Líkt og í fyrri óperum sækir Þórunn söguefnið í íslenskan þjóðararf  og notar hið alþekkta ævintýri um Hlina kóngsson sem grunn. Sýningin er ætluð fyrir alla aldurshópa, enda birtast karlsdóttir, kóngsson og tröll á sviðinu, auk þess sem ýmsir furðulegir fuglar koma við sögu. Hlini er nokkuð hefðbundið ævintýri, þar sem söguhetjan lendir í ógöngum, í þessu tilviki er það kóngssonur...

Sjá meira

Tvær danssýningar í Tjarnarbíói

Fimmtudaginn 21. okt kl. 20 verða tvær danssýningar sýndar í Tjarnarbíói, Singletrack eftir Jacek Luminski flutt af dönsurum ÍD og Colorblind eftir Sigríði Soffíu með dönsurum frá Silesian Dance Theatre. Þessar sýningar eru hluti af Dance Bridge verkefni Silesian Dance Theatre Pólandi, ÍD og SL á Íslandi og Samovarteateret Noregi. SingletrackList er líf, og lífið er fullt af list! Verkið er falleg og nákvæm sýning með fimleika-ívafi, skipt niður í nokkra hluta sem taka á einstökum þáttum hins hversdagslega lífs. Líkaminn sem aðalskynfærið okkar og veraldleikin eru helstu þemu verksins en söguþráðurinn er fólgin í hinni lifandi heild sem...

Sjá meira

Leikfélagið Peðið sýnir Sögur af mannlífsklakanum

Síðastliðinn laugardag frumsýndi Leikfélagið Peðið leikritið Sögur af mannlífsklakanum við frábærar undirtektir áhorfenda. Sýningin fór fram í nýinnréttuðu „leikhúsi“ á  Gallerí Bar 46 að Hverfisgötu 46. Þessi leiksýning er 13 verkið sem Peðið setur upp og er höfundur þess Jón Benjamín Einarsson, leikstjóri er Björn Gunnlaugsson og tónlist er samin og flutt af Magnúsi R. Einarssyni. Mannlífsklakinn er hálf nöturlegt orð yfir samfélag og fráhrindandi eins og samfélagið sem það lýsir. Orðið er fengið að láni frá Jóhannesi Birkiland, sem átti á sínum tíma í brösum með samferðamennina. Síðan hefur hlýnað töluvert á klakanum. Bæði vegna  náttúruhamfara, sem sjálfsagt...

Sjá meira

Þjónustumiðstöðin hefur aftur starfsemi af fullum krafti

Nú er óðum allt að komast í samt lag á Þjónustumiðstöð Bandalagsins eftir innbrotið á dögunum. Verslunin er aftur opin og komin í fulla starfsemi eftir að hafa aðeins geta veitt lágmarksþjónustu undanfarnar tvær vikur. Ráðstafanir hafa verið gerðar til að forða því að svona lagað komi fyrir aftur, t.d. er ætlunin að setja upp öryggismyndavél. Er það von okkar að þar með verði bundinn endi á innbrotasögu...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert