Author: lensherra

Ódó á gjaldbuxum snýr aftur

Einleikurinn Ódó á gjaldbuxum verður tekið aftur til sýninga og sýnt í Tjarnarbíó. fimmtudaginn 28., föstudaginn 29., laugardaginn 30. og sunnudaginn 31. október kl. 20. Leikstjóri, höfundur, leikmyndar- og búningahönnuður er Ásdís Thoroddsen. Leikari er Þórey Sigþórsdóttir Þáttur slæðukonunnar í úlfakreppunni sem skekur heimsbyggðina um þessar mundir er ýmsum kunnur, þótt hann hafi enn ekki verið rannsakaður til fulls. Nú býður hún til stofu og segir frá uppvexti sínum í kofahreysi í útjaðri Reykjavíkur, rennir augum yfir hið  dularfulla skeið sem valdamesta manns á byggðu bóli og veitir gestum hlutdeild í glæpum sínum. Ódóið afhjúpar sig, en í vissum...

Sjá meira

Áhugaleikhúss atvinnumanna sýnir Október

Október, örverk um upp-reisn verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl. 12.30 föstudaginn 29. október frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð. Áhorfendur eru boðnir velkomnir í Útgerðina til að upplifa sjónleikinn með berum augum eða sitja í sínu umhverfi fyrir framan tölvuna og fylgjast með í beinni útsendingu. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir. Verkið er tíunda örverkið af 12 sem Áhugaleikhúss atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010 og eru kennd eftir þeim mánuði sem þau eru flutt í. Viðfang verkanna ræðst af því...

Sjá meira

Frumsýningu Leikfélags Ölfuss á Stútungasögu frestað

Frumsýningu Leikfélags Ölfuss á Stútungasögu, sem vera átti í kvöld, þriðjudaginn 26. október kl. 20.00, hefur af óviðráðanlegum orsökum verið frestað til 2. nóvember. Leikritið er  eftir fjóreykið Ármann Guðmundsson, Hjördísi Hjartardóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason og er paródía á Sturlungaöldina. Segir þar frá ástum og ofbeldi, klækjum og klaufaskap, hetjuskap og hálfvitagangi auk þess sem flett er ofan af höfundi Njálu. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson. Sýnt er í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss. Stútungasaga var fyrst sett upp hjá leikfélaginu Hugleik í Reykjavík árið 1993 og eru uppsetningar á verkinu hjá áhugaleikfélögum síðan orðnar um 10 talsins. Leikritið byggir...

Sjá meira

Ódauðlegt verk um draum og veruleika frumsýnt 27. október

Sjónleikur Áhugaleikhúss atvinnumanna, Ódauðlegt verk um draum og veruleika, verður frumfluttur Miðvikudaginn 27.október í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna. Verkið er fjórða í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist og gerist á huglægum stað handan tíma og rýmis. Verkið spyr hvort sé raunverulegra, það sem fer fram í huga fólks eða það sem sýnilega hendir í veraldlegum heimi. Erum við saman í þessu? Hver metur? Hver upplifir? Hverjum er sama? Leikstjóri og höfundur er Steinunn Knútsdóttir. Verkin fimm eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir...

Sjá meira

Barnaleikrit 10 haust í röð og af því tilefni lægra miðaverð

Nú í haust hefur Leikfélag Sauðárkróks sett upp barnaleikrit í 10 ár í röð. Stjórn LS hefur ákveðið að halda upp á þessi tímamót með því að bjóða áhorfendum sínum miða á Jón Odd og Jón Bjarna á einungis 1000 krónur! Frumsýning á Jóni Oddi og Jóni Bjarna verður í Bifröst sunnudaginn 31. október kl. 19:30 Árið 2000 setti Leikfélag Sauðárkróks upp barnaleikritið Nornin Baba Jaga eftir Jevgení Schwartz og hefur eftir það sett upp barnaleikrit á hverju hausti. Nornin Baba Jaga var þó langt frá því fyrsta barnaleikritið sem LS sýndi. Klassísk verk eins og Dýrin í Hálsaskógi,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert