Stutt í frumsýningu hjá Halaleikhópnum
Halaleikhópurinn vinnur nú hörðum höndum að uppfærslu sinni á verkinu Góðverkin kalla! eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, en allir eru þeir meðlimir Ljótu hálfvitanna og ekki er þetta í fyrsta skipti þar sem þeir félagar koma að uppsetningu leikverka fyrir Halaleikhópinn með einhverjum hætti. Þess má til gamans geta að leikstjórar þetta leikárið eru að þessu sinni tveir, þau Oddur Bjarni Þorkelsson (sem er einmitt í Ljótu hálfvitunum) og Margrét Sverrisdóttir. Stefnt er á frumsýningu 4. febrúar. Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem...
Sjá meira


