Author: lensherra

Helgi dauðans hjá Hugleik

Helgi dauðans nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur sem Hugleikur frumsýnir laugardaginn 22. janúar kl. 20.00 í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Leikstjórar eru Rúnar Lund og Sigurður H. Pálsson. Í Helgi dauðans beinir höfundur sjónum sínum að veruleika íslenskra háskólanema sem reyna eftir fremsta megni að feta einstigið milli lærdóms og skemmtunar, þó skemmtunin verði óvart lærdómsríkari en gott þykir. Sagt er frá þremur ungmennum sem búa saman í íbúð á óræðum stað í miðbænum. Hjá þeim eru heimavanir misjafnir sauðir og þegar ein heimasætan heldur upp á afmælið sitt verður úr því geysimikið – partí....

Sjá meira

Elsku barn í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið frumsýndi í vikunni sem leið leikritið Elsku barn eftir breska leikskáldið Dennis Kelly í þýðingu Hafliða Arngrímssonar. Elsku barn er nístandi leikrit sem fjallar um óbærilegan sársauka og lætur engan ósnortinn. Hér er á ferð heimildaleikrit sem fjallar um tilraunir fólks til að leita sannleikans. Í þeirri mögnuðu leit komumst við á snoðir um margvíslega birtingarmynd lyginnar. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson. Ung móðir er sökuð um að hafa myrt börn sín tvö. Þó er alls ekki ljóst hvort um morð er að ræða eða sorglegt slys. Málið vekur athygli almennings og áhuga hinna ólíklegustu aðila. Leikritið er...

Sjá meira

Súldarsker sýnt í Tjarnarbíói

Föstudaginn 14. janúar var Súldarsker, nýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur, frumsýnt í Tjarnarbíó. Verkið er ærslafull, tragíkómísk, ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Leikarar eru Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir en Harpa Arnardóttir leikstýrir.   Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum; önnur gruflar í fortíðinni en hin staldrar aldrei við til að líta um öxl. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma gamlir vitaverðir, bæjarhátíðin Hryssingsdagar, gráðugir ufsar, óupplýst morð, uppstoppaðar kríur og síðast en ekki síst leyndardómar...

Sjá meira

Sveinn skotti á faraldsfæti

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Lýðveldisleikhúsið hefur að nýju sýningar á hinni svívirðilegu skemmtun og svörtu kómedíu Síðasti dagur Sveins skotta. Tvær sýningar verða í Edinborgarhúsinu, sú fyrri föstudaginn 21. janúar og einnig daginn eftir, báðar sýningarnar hefjast kl. 20. Á sunnudag 23. janúar verður leikurinn sýndur í Félagsheimilinu á Þingeyri kl. 20. Ekki er honum þar með lokið því næst skottast hann til höfuðborgarinnar. Sýnt verður í hinu nýuppgerða leikhúsi við tjörnina, Tjarnarbíói. Aðeins verða tvær sýningar þar, sú fyrri fimmtudaginn 27. janúar og hin föstudaginn 28. janúar. Hefjast sýningarnar kl. 20. Miðasala á þær sýningar er einnig hafin...

Sjá meira

Fjögur leiklistarnámskeið í Hafnarfirði

Gaflaraleikhúsið og Leikfélag Hafnarfjarðar standa fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn, unglinga og fullorðna í vetur. Leiðbeinendur verða þau Björk Jakobsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson og Ágústa Skúladóttir. Námskeið fyrir 10 – 12 ára hefjast 20. janúar, fyrir 13 – 15 ára þann 24. janúar og 16 ára og eldri þann 19. janúar. Námskeið Ágústu hefst í mars. Námskeiðin fara fram í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50 í Hafnarfirði.   Leiklist fyrir lífið! / Lærum að leika Leiklistarnámskeið fyrir 10 – 12 ára (miðdeild grunnskóla , 5-7 bekkur) Leiðbeinandi er Björk jakobsdóttir sem hefur um árabil vakið athygli sem leikkona . leikstjóri og leikskáld....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert