Author: lensherra

Allskonar Elvis í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar fagnar í ár 35 ára starfsafmæli sínu. Af því tilefni  verður sýningin Allskonar Elvis, frumsýnd föstudaginn 18. febrúar.  Sýningin, sem er samin af Maríu Guðmundsdóttur, leikhópnum öllum í samstarfi við leikstjóra er unnin úr hugmyndum um kónginn sjálfan, Elvis Presley, en er þó langt frá því að vera ævisaga hans. Fjöldi manns kemur að sýningunni bæði leikarar, dansarar, söngvarar og hljóðfæraleikarar eða um 50 manns. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir og um tónlistina sjá Birgir Haraldsson og Hljómsveitin 66.   Við hvetjum alla til að kíkja í leikhús Mosfellinga og njóta frábærrar kvöldstundar sem kitlar hláturkirtlana. Nánari upplýsingar...

Sjá meira

Styrkjum úthlutað til atvinnuleikhópa

Í gær var tilkynnt hvaða atvinnuleikhópar fá styrki frá Menntamálaráðuneytinu árið 2011. Alls sóttu 67 aðilar um styrki til 85 verkefna auk sex umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2011 eru alls 58,4 millj. kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð renna 4 millj. kr. til skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna skv. ákvörðun Alþingis. Samtals er úthlutað til einstakra verkefna 53,1 millj.kr. Í leiklistarráði eru Guðrún Vilmundardóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, Jórunn Sigurðardóttir, tilnefnd af Leiklistarsambandi Íslands og Hera Ólafsdóttir, tilnefnd af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa.   Eftirtaldir aðilar fengu styrk: Sviðslistahópurinn 16 elskendur / Ylfa Ösp Áskelsdóttir o.fl. 8.000 þús. kr. til...

Sjá meira

Snúður og Snælda sýnir Rauðu klemmuna

Leikfélagið Snúður og Snælda er nú að hefja sitt 21. leikár. Það má því segja að leikfélagið sé búið að slíta barnsskónum. En á síðasta ári hélt það upp á 20 ára afmælið með sýningu á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Að þessu sinni býður félagið upp á leikritið Rauða klemman eftir Hafstein Hansson. Verkið gerist á lítilli veitingastofu þar sem óvæntan gest ber að garði sem reynir að auðgast á kostnað annarra. Afar kunnulegt stef. Frumsýnt verður í Iðnó n.k. sunnudag, 20. febrúar, kl. 14.00. Hér er á ferðinni gamanleikur þar sem alls konar...

Sjá meira

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Góða dátann Svejk

Laugardaginn 19. febrúar klukkan 20:00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Góði Dátinn Svejk, í leikgerð Írans Colin Teevan. Munu sýningar standa fram á vor. Stór hópur leikara og annara góðhjartaðra koma að uppsetningunni eða um fimmtíu manns, er síðast var talið.  Leikstjóri er Þór Tulinus. Þetta er bráðfjörug sýning um ævintýri Góða Dátans Svejk í Stríðinu mikla, þar sem hann dregur dár af (sjálfsköpuðum) raunum okkar mannana með æðruleysi sínu og auðmýkt. Andlit hans ljómar af kærleika og ást til refsandi yfirboðarana sem úrskurða hann „löggiltan hálfbjána“. Hann er „fullkomlega sáttur“ hvað sem á bjátar...

Sjá meira

Aukasýningar á Súldarskeri

Vegna gríðarlegrar aðsóknar að Súldarskeri eftir Sölku Guðmundsdóttur í Tjarnarbíó er búið að bæta við fjórum auka sýningum 18. 22. 23 og 27. febrúar. Verkið er ærslafull, tragíkómísk ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Tvær leikkonur leika öll hlutverkin, sem eru samtals hátt í tuttugu talsins. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir og leikarar Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir. Verkið hefur hlotið lof gagnrýnanda og áhorfenda en uppselt hefur verið á allar sýningar frá frumsýningu 14. janúar. Leikhúsbarinn Majónes hefur boðið gestum upp á leikhúsbakka í anddyri Tjarnarbíós fyrir sýningar en áhorfendur geta þar notið...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert