Author: lensherra

Aukasýning á Helgi dauðans

Vegna mikillar aðsóknar hefur verið bætt við einni aukasýningu á Helgi dauðans og verður hún laugardaginn 26. febrúar kl. 20.00. Aðeins verður þessi eina aukasýning og því um að gera að tryggja sér miða í tíma.Helgi dauðans er nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Rúnars Lund og Sigurðar H. Pálssonar. Í Helgi dauðans beinir höfundur sjónum sínum að veruleika íslenskra háskólanema sem reyna eftir fremsta megni að feta einstigið milli lærdóms og skemmtunar, þó skemmtunin verði óvart lærdómsríkari en gott þykir. Raktir eru atburðir einnar helgar á heimili þriggja ungmenna, tvíburanna Birtings og Ninnu og vinkonu...

Sjá meira

Leiklistarnámskeið í mars

Pálína Jónsdóttir leikhúslistamaður og Trausti Ólafsson leiklistarfræðingur halda 36 stunda námskeið í markvissri þjálfun í list og tækni leikarans í mars og apríl. Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á að nýta dýnamískar aðferðir leiklistarinnar til að vinna heildrænt með líkama og rödd. Námskeiðið er fyrir sviðslistafólk, þá sem hafa leiklistarmenntun og vilja tileinka sér aðferðir til að efla sviðslist sína og tækni og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í leiklist. Jafnframt nýtist námskeiðið þeim sem þurfa að koma fram með einum eða öðrum hætti í starfi sínu. Námskeiðið reynir á krafta og þol og...

Sjá meira

Allskonar Elvis í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar fagnar í ár 35 ára starfsafmæli sínu. Af því tilefni  verður sýningin Allskonar Elvis, frumsýnd föstudaginn 18. febrúar.  Sýningin, sem er samin af Maríu Guðmundsdóttur, leikhópnum öllum í samstarfi við leikstjóra er unnin úr hugmyndum um kónginn sjálfan, Elvis Presley, en er þó langt frá því að vera ævisaga hans. Fjöldi manns kemur að sýningunni bæði leikarar, dansarar, söngvarar og hljóðfæraleikarar eða um 50 manns. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir og um tónlistina sjá Birgir Haraldsson og Hljómsveitin 66.   Við hvetjum alla til að kíkja í leikhús Mosfellinga og njóta frábærrar kvöldstundar sem kitlar hláturkirtlana. Nánari upplýsingar...

Sjá meira

Styrkjum úthlutað til atvinnuleikhópa

Í gær var tilkynnt hvaða atvinnuleikhópar fá styrki frá Menntamálaráðuneytinu árið 2011. Alls sóttu 67 aðilar um styrki til 85 verkefna auk sex umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2011 eru alls 58,4 millj. kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð renna 4 millj. kr. til skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna skv. ákvörðun Alþingis. Samtals er úthlutað til einstakra verkefna 53,1 millj.kr. Í leiklistarráði eru Guðrún Vilmundardóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, Jórunn Sigurðardóttir, tilnefnd af Leiklistarsambandi Íslands og Hera Ólafsdóttir, tilnefnd af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa.   Eftirtaldir aðilar fengu styrk: Sviðslistahópurinn 16 elskendur / Ylfa Ösp Áskelsdóttir o.fl. 8.000 þús. kr. til...

Sjá meira

Snúður og Snælda sýnir Rauðu klemmuna

Leikfélagið Snúður og Snælda er nú að hefja sitt 21. leikár. Það má því segja að leikfélagið sé búið að slíta barnsskónum. En á síðasta ári hélt það upp á 20 ára afmælið með sýningu á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Að þessu sinni býður félagið upp á leikritið Rauða klemman eftir Hafstein Hansson. Verkið gerist á lítilli veitingastofu þar sem óvæntan gest ber að garði sem reynir að auðgast á kostnað annarra. Afar kunnulegt stef. Frumsýnt verður í Iðnó n.k. sunnudag, 20. febrúar, kl. 14.00. Hér er á ferðinni gamanleikur þar sem alls konar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert