Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan sýnt í Miðfirði
Leikfélag ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka í Miðfirði frumsýndi í lok mars farsann Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í þýðingu Sigurðar Atlasonar. Leikstjóri sýningarinnar er Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir. Páskasýning verður laugardag fyrir páska 23. apríl í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka. Farsinn fjallar um erkipiparsveininn Jónatan. Hann á þrjár konur sem allar eru flugfreyjur og vita þær ekki hver af annarri. Allt gengur þetta vel þar til flugfélögin fá nýjar, hljóðfráar þotur sem eru mikið fljótari í förum, en þá riðlast allt skipulag í lífi Jónatans. Ekki bætir úr skák að félagi...
Sjá meira


