Author: lensherra

Undir fullum seglum!

Leikfélag HörgdælaMeð fullri reisnLeikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Undanfarnar vikur hefur Leikfélag Hörgdæla sýnt gamanleikinn Með fullri reisn fyrir fullu húsi bæði föstudags- og laugardagskvöld og oftar en ekki bætt við miðnætursýningum til að anna eftirspurn eftir miðum á þessa frábæru skemmtun. Með fullri reisn er 10 ára gamalt sviðsverk bandaríska leikrita- og söngleikjaskáldsins Terrence McNally eftir breskri kvikmynd með sama nafni eftir handritshöfundinn Simon Beaufoy. Sviðsverkið gengur út á sömu þætti og voru burðarásar í kvikmyndinni, atvinnuleysi, verkalýð (hér bændur) rétt fráskilinna feðra til að umgangast og ala upp börnin sín, þunglyndi, getuleysi, samkynhneigð og sjálfsmorð. Hljómar ekki sérstaklega...

Sjá meira

Mannsins myrka hlið í Borgarfirði

Leiklistarfélag Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi sl. föstudag Mannsins myrku hlið sem er leikriti með söngvum, byggt á plötunni Dark side of the moon með Pink Floyd. Verkið er frumsamið af Bjarti Guðmundssyni, sem jafnframt er leikstjóri þess, og leikhópnum. Frumsýningin gekk framar öllum vonum og ætlaði þakið að rifna af húsinu þegar sýningunni lauk, áhorfendur stóðu upp og hylltu aðstandendur sýningarinnar. Tvær sýningar voru á sunnudeginum sem tókust einnig mjög vel.   Hugmyndin á bak við verkið var að setja upp leiksýningu sem snerti fólk, þ.e. að það færi út af sýningunni og hugsaði hvernig það tengir þetta við sjálft...

Sjá meira

Leikhúsið í þjónustu mannúðar

Ávarp á alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars 2011 Samkoman í dag, á alþjóðlegum degi leiklistarinnar, er sönn mynd af ótrúlegri getu leikhússins að virkja fólk og byggja brýr. Hafið þið einhvern tíman hugsað út í það hve öflugt tæki leikhúsið gæti verið til friðar og sátta? Ríkisstjórnir fjárfesta ógnarsummur í friðarsveitum á átakasvæðum, en fáir líta á raunverulega  möguleika leikhússins til að leysa deilur og átök manna í milli. Hvernig eiga jarðarbúar að skapa alheims frið þegar aðferðirnar og tækin koma frá framandi og kúgandi öflum?   Leikhúsið breytir mannssálinni á margvíslegan hátt þegar hún er fangi ótta og vantrausts....

Sjá meira

Ávarp á Alþjóðlega leikhúsdeginum 27. mars 2011

Það er merkilegt að í hinni efnahagslegu kreppu sem ríkt hefur á Íslandi síðustu misseri, hefur listin blómstrað sem aldrei fyrr. Aðsóknarmet eru sett í leikhúsunum, gestafjöldi á tónleika og myndlistarsýningar eykst og fleiri bækur seljast en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig að fólk forgangsraðar öðruvísi en áður og leitar í vaxandi mæli á vit lista og menningar. Í kreppu er mesta ríkidæmi þjóðarinnar fólgið í mannauðnum. Fólk hristir upp í eigin vanahugsun og veitir athygli verðmætum, sem stundum vildu gleymast í þeirri veraldlegu græðgisvæðingu, sem hér herjaði um árabil. Sterkt listalíf á atvinnugrunni hjálpar okkur meira...

Sjá meira

Síðustu forvöð á Bót og betrun

Leikfélag Kópavogs hefur undanfarið sýnt fimmhurðafarsann Bót og betrun eftir Michael Cooney við rífandi góðar viðtökur. Aðeins þrjár sýningar eru nú eftir áður en sýningin fer í mánaðarlangt hlé. Uppselt er á sýningar fim. 24. og fös. 25. mars en enn eru lausir miðar sunnudaginn 27. mars. Sýnt er í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til svika þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara að komast á bætur en af þegar boltinn er einu sinni farinn...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert