Mikið um að vera hjá Leikfélagi Selfoss
Það er mikið um að vera í Litla leikhúsinu við Sigtún um þessar mundir hjá Leikfélagi Selfoss. Sýningum á hinu skemmtilega barnaleikriti Rúi og Stúi er nýlokið og vill leikfélagið þakka öllum þeim sem komu á sýninguna kærlega fyrir komuna en aðsókn og viðtökur voru einstaklega góðar. En þó að sú sýning hafi runnið sitt skeið er margt spennandi framundan. Helgina 19. – 20. nóvember verður námskeið í gervi og förðun undir leiðsögn Kristínar Thors og eru enn laus pláss á námskeiðið. Námskeiðið er opið öllum en Kristín hefur mikla reynslu í sínu fagi. Hið vinsæla Hugarflug verður haldið...
Sjá meira


