Author: lensherra

16 elskendur furmsýna Sýningu ársins

Sunnudaginn 4. mars næstkomandi, frumsýnir Sviðslistahópurinn 16 elskendur stórvirkið Sýningu ársins, sviðslistaviðburð fyrir alla Íslendinga. Eins og titillinn gefur til kynna er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur en í sýningunni leitast hópurinn við að koma til móts við „leikhúsþarfir Íslendinga.“  Í því skyni hefur leikhópurinn látið gera skoðanakönnun á því hvað Íslendingar vilja sjá á sviði. Til að niðurstaðan væri sem vísindalegust gekk hópurinn til samstarfs við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sem framkvæmdi könnunina með 1400 manna úrtaki. Sýningin er unnin beint upp úr niðurstöðum rannsóknarinnar. Hvað vilja Íslendingar sjá í leikhúsi? Hvað vilt þú sjá í...

Sjá meira

Nei ráðherra! í Hofi laugardaginn 3. mars

Næstkomandi laugardag, hefjast sýningar á gleðileiknum Nei ráðherra! í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hér er á ferðinni drepfyndið verk úr smiðju Ray Cooney í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Fyrirhugaðar eru fjórar sýningar í viðbót fyrir norðan á Nei ráðherra!, laugardaginn 10. mars kl. 19 og 22 og föstudaginn 16. mars, einnig kl. 19 og 22. Leikstjórn er í höndum Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra. Ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sópað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þó aldrei dauðum manni og það á hótelherbergi – með viðhaldinu – sem er innsti koppur í búri stjórnarandstöðunnar. Það stóð ýmislegt til í...

Sjá meira

Venjufólk og smámenn

Leikfélag KópavogsHringurinn eftir Hrefnu FriðriksdótturLeikstjóri: Hörður Sigurðarson Leikfélag Kópavogs frumsýndi síðastliðinn sunnudag, 26. febrúar, leikritið Hringinn eftir Hrefnu Friðriksdóttur í Leikhúsinu við Funalind í Kópavogi. Í leikritinu segir frá Evgeníu sem lifir einkar fábrotnu lífi og starfar hjá opinberri stofnun. Dag einn kemur lögfræðingur til hennar og greinir henni frá láti föður hennar. Hún kynntist föður sínum raunar aldrei, en hann hefur samt sem áður arfleitt hana og reynist föðurarfurinn vera sirkus. Lífið í sirkusnum er svo sannarlega ólíkt því lífi sem Evgenía hefur kynnst áður og persónurnar eru litríkar og ekkert „venjufólk“. Og „venjufólkið“ kemur mikið við sögu...

Sjá meira

Costa del Selfoss

Leikfélag SelfossSólarferð eftir Guðmund SteinssonLeikstjóri: Rúnar Guðbrandsson Þann 24. febrúar síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Selfoss Sólarferð eftir Guðmund Steinsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Sólarferð var sett upp í fyrsta sinn af Þjóðleikhúsinu árið 1976 við góðar undirtektir og síðan aftur 2008. Leikritið gerist snemma á áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol þar sem þau ætla að njóta sólarinnar og frelsisins sem fylgir því að vera í fríi, fjarri skyldum heimilis og launavinnu.   Þetta er gamanleikur en þó með alvarlegum undirtón. Leikritið var ekta samtímaverk á sínum tíma og var skrifað inn í...

Sjá meira

Þjóðleikhúsið frumsýnir Dagleiðin langa inn í nótt

Föstudaginn 24. febrúar verður eitt frægasta og magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar, Dagleiðin langa inn í nótt eftir Eugene O’Neill, frumsýnt í Kassanum. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir og en þýðinguna gerði Illug Jökulsson. Leikritið hefur tvívegis áður verið sýnt í Þjóðleikhúsinu, árið 1959 undir heitinu Húmar hægt að kveldi og árið 1982 undir heitinu Dagleiðin langa inn í nótt. Dagleiðin langa er magnþrungið listaverk, fallegt í hrikaleik sínum, nærgöngult og grimmt. Hér er sálrænum afleiðingum kúgunar og neyslu lýst á einstaklega áhrifamikinn hátt. Leikritið gerist á miklum átakadegi í lífi Tyrone-fjölskyldunnar, hjóna og tveggja uppkominna sona þeirra. Fjölskyldan er þrúguð...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert