Author: lensherra

Leiklistarskóli Bandalagsins 2012

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga 2012 Skráning í skólann stendur yfir frá 15. mars til 15. apríl  nema á Trúðanámskeiðið, þar verður opið fyrir skráningar til 30. apríl. Reglan „fyrstur kemur – fyrstur fær“ gildir við skráningar gegn greiðslu staðfestingargjalds, kr. 35.000 ef inntökuskilyrðum er fullnægt að öðru leyti. Náist ekki ásættanlegur fjöldi á eitthvert námskeiðanna fellur það niður. Aldurstakmark í skólann er 18 ár. Skólinn hefur sett sér reglur, m.a. um umgengni, reykingar og áfengisneyslu, sem nemendur samþykkja að fara eftir á starfstíma skólans. Umsókn má senda á netfangið info@leiklist.is og leggja staðfestingargjaldið inn á reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239...

Sjá meira

Yfir 5.000 gestir á Gulleyjuna

Óhætt er að segja að viðtökurnar á sýningu LA á Gulleyjunni hafa verið frábærar. Nú hafa verið sýndar hátt í þriðja tug sýninga, uppselt hefur verið á hverja einustu og hvergi lát á. Um síðustu helgi var fimmþúsundasti gesturinn á meðal áhorfenda og reyndist það vera Sigríður Kristín Sverrisdóttir frá Skriðu í Hörgársveit. Henni voru færðar gjafir og eftir sýninguna heilsaði hún uppá leikara Gulleyjunnar baksviðs. Það mátti sjá sjóræningjafána blakta vítt og breytt um bæinn af þessu tilefni. Leikfélag Akureyrar býður leikhúsgestum upp á fjölbreyttar sýningar það sem eftir er af þessu leikári og því ættu allir að...

Sjá meira

Lína Langsokkur í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir leikritið um Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren, laugardaginn 10. mars klukkan 14.00 í Leikhúsinu Austurmörk 23 í Hveragerði. Leikstjóri er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson og með aðalhlutverkið fer Esther Helga Klemenzardóttir. Með hlutverk Tomma og Önnu fara Axel Bjarkar Sigurjónsson og Ásdís Mjöll Halldórsdóttir. Undirleik annast píanósnillingurinn Guðmundur Eiríksson. Alls koma nærri 30 manns að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Leikfélag Hveragerðis verður 65 ára á þessu ári og er því eitt af elstu starfandi áhugaleikfélögum landsins. Sýningar verða: Laugardagur 10. mars – Frumsýning kl. 14.00Sunnudagur 11 . mars kl. 14.00Miðvikudagur 14. mars – kl. 18.00Föstudagur...

Sjá meira

Einleikurinn Afinn á leið um landið

Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson ferðast um landið með glænýtt íslenskt gamanleikrit í farteskinu, leikrit sem fékk mjög góða dóma sem og aðsókn í Borgarleikhúsinu á yfirstandandi og síðastliðnu leikári. Uppfærslan er samvinna þeirra Sigurðar og Bjarna Hauks Þórssonar. Áður hafa þeir unnið saman að Hellisbúanum og Pabbanum. Hvernig eru afar í dag? Þeir eru á besta aldri, í góðri stöðu, búnir að ala upp börnin og geta loksins notið lífsins eftir brauðstritið. Margir hverjir eiga Harley Davidson í bílskúrnum og hlusta ennþá á Bítlana, en eiga það allir sameiginlegt að sofna yfir Kastljósinu á kvöldin. En verkefni...

Sjá meira

Revía í Reykholti

Ungmennafélag Reykdæla frumflutti föstudaginn 2. mars revíuna Ekki trúa öllu sem þú heyrir (og ekki trúa öllu sem þú sérð) í Logalandi í Reykholtsdal. Handrit og lagatextar eru eftir Bjartmar Hannesson bónda og skáld á Norður Reykjum í Hálsasveit. Það verður að teljast til viðburða þegar áhugamannaleikhús frumflytur rammíslenska revíu. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. í verkinu er eins og í öllum góðum revíum, gert grín að heimamönnum í nútíð, þátíð og jafnvel framtíð. Egill Skallagrímsson sjálfur er kominn á vettvang og kynnir áhorfendum sögusviðið: Borgarfjörður, landnám Skallagríms árið 2012. Ýmsum kunnuglegum persónum bregður fyrir og léttleikinn er alltaf til...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert