Súldarsker til Akureyrar
Í samstarfi við Leikfélag Akureyrar verður leikverkið Súldarsker eftir Sölku Guðmundsdóttur sýnt í Rýminu á Akureyri 16. og 17. mars næstkomandi. Þessi bráðskemmtilega sýning sló rækilega í gegn þegar hún var frumsýnd í fyrra og hlaut mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda. Meðal annars var sýningin tilnefnd til tvennra Grímuverðlauna. Í kjölfarið verður Súldarsker einnig sýnt nokkrum sinnum í Tjarnarbíói en sýningin hætti þar fyrir fullu húsi í fyrra. Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma gamlir vitaverðir, bæjarhátíðin...
Sjá meira


