Allra síðasta sýning á Sólarferð
Nú er hver að verða síðastur til að sjá þessa stórskemmtilegu uppfærslu Leikfélags Selfoss á Sólarferð eftir Guðmund Steinsson því nú er komið að allra síðustu sýningu! Hún verður sýnd miðvikudaginn 4. apríl kl. 20 í Litla leikhúsinu á Selfossi. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur og hefur verið uppselt á hverja sýninguna á fætur annarri. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Þau ætla sannarlega að njóta sólarinnar, enda er hún ástæðan fyrir ferðum hins fölbleika landa til útlanda, sem og frelsisins sem fylgir því...
Sjá meira


