Frumflutningur á óperettupari
Óperettuparið Fjársjóðurinn í tónlistarskólanum verður frumsýnt í Iðnó þriðjudaginn 24. apríl kl. 20.00. Fyrri hlutinn er Tónlistarskólinn, splunkunýtt verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur og síðari hlutinn er óperettan Falinn fjársjóður eftir Offenbach í nýrri þýðingu Þórunnar. Flytjendur eru nemendur í Tónlistarskólanum í Reykjavík, 14 söngvarar og hljómsveit. Stjórnandi er Tryggvi M. Baldvinsson og leikstjóri er Þórunn Guðmundsdóttir. Tónlistarskólinn gerist í tónlistarskóla sem er í gífurlegu fjársvelti. Það veldur því að skólastjórinn verður ákaflega þunglyndur og missir alla trú á tónfræði og tónlist. Þegar nemendurnir frétta þetta ákveða þeir að setja upp óperu til að hressa hann við og koma skólanum...
Sjá meira


