Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Tveir tvöfaldir
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen á opnunardegi Sæluvikunnar þann 29. apríl næstkomandi í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikfélag Sauðárkróks hefur áður sýnt leikrit eftir Ray Cooney, Með vífið í lúkunum, 2006 og Viltu finna milljón?, 2008, auk þess að frumflytja Ray Cooney á íslensku leiksviði árið 1978 er félagið setti upp leikritið Eltu mig, félagi. Tveir tvöfaldir er dæmigerður farsi sem gerist á Hótel Höll, en þangað fer alþingismaðurinn Ormur Karlsson ásamt konu sinni Pálínu til að slaka á undir lok þingsins. Við bætist Hreinn, aðstoðarmaður Orms og...
Sjá meira


