Gói og baunagrasið snýr aftur á Litla sviðið
Gói og baunagrasið – snýr aftur á Litla sviðið á sunnudaginn 7. október í takmarkaðan tíma. Hér eru á ferðinni lifandiog bráðskemmtilegar barnasýningar með Góa og Þresti Leó sem leiða börnin inn í heim ævintýranna. Sýningarnar Eldfærin og Gói og Baunagrasið eru uppfullar af leikhústöfrum, kímni og fjörugri tónlist sem fallið hefur svo sannarlega í kramið hjá ungum sem öldnum leikhúsunnendum. Ævintýrið um Eldfærin eftir H.C. Andersen var frumsýnt vorið 2011. Dátinn er á leið heim úr stríði og upp spinnst spennandi ævintýri þar sem nornin, prinsessan og allir þorpsbúar birtast ljóslifandi að ógleymdum hundunum þremur með ógnarstóru augun....
Sjá meira


