Author: lensherra

Jólagjafirnar hjá Bandalaginu

Hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga fæst mikið úrval af „óhefðbundum“ jólagjöfum fyrir þá sem gaman hafa af því að bregða sér í allra kvikinda gerfi. Andlitslitir fyrir börn, smink fyrir fullorðna, skallar, gerfiaugnhár, gerfiskegg, tannlitur,  litahársprey, glimmer, fljótandi latex, gerfiblóð, gerfinef og margt fleira. Við erum til húsa að Kleppsmýrarvegi 8 og opnunartími er frá 9-13 alla virka daga. Hægt er að panta í póstkröfu í síma 551 6974 eða á info@leiklist.is. Hér er hægt að skoða vörulistann okkar....

Sjá meira

Halaleikhópurinn æfir Rympu á ruslahaugnum

Halaleikhópurinn æfir um þessar mundir barnaleikritið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur, í leikstjórn Herdísar Þorgeirsdóttur. Verkið er leikrit fyrir börn á öllum aldri og hófust æfingar þann 1. nóvember og verður það frumsýnt snemma næsta árs. Leikritið fjallar um hana Rympu sem lifir og býr nú á ruslahaugnum, er frekar ófyrirleitin og hagar lífi sínu ekki alltaf eftir lögum og reglu. Undir harðsoðnu yfirborði Rympu býr reynsla frá æsku. Þar sem hún er svolítið einmana með tuskukarlinum sínum er það mjög kærkomið þegar hún fær heimsókn tveggja afskiptra barna. Tekur hún þau í sína umsjá og ætlar að...

Sjá meira

Leikárið 2011-12 hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga

Hér er síðbúið yfirlit yfir starfsemi aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2011-12. 39 leikfélög settu upp leiksýningar á árinu sem er nákvæmlega sami fjöldi og á síðasta leikári en aðildarfélögunum fjölgaði úr 60 í 63 á leikárinu. Alls settu félögin upp 104 verk sem sýnd voru í heildina 579 sinnum og í þeim tóku þátt 1.732 manns. Heildarfjöldi félaga í áhugaleikfélögunum var 2.705 og áhorfendur á sýningunum voru 37.284. 20 best sóttu sýningarnar á leikárinu voru: 1. Lína langsokkur, Leikfélag Hveragerðis, – 1931 áhorfandi á 24 sýningum 2. Óværuenglarnir, Borgarbörn – 1638 áhorfendur á 19 sýningum 3. Í gegnum...

Sjá meira

Jesús litli kemur með jólin

Sýningar á Jesú litla eru orðnar fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum Íslendingum og hann snýr aftur á Litla sviðið 4. desember. Þetta er í fjórða sinn sem Jesús litli er sýndur í Borgarleikhúsinu í aðraganda jólanna og ekkert lát á vinsældum hans. Sýningin var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010, hlaut alls 7 tilnefningar og var valin sýning ársins og leikverk ársins. Jesús litli fór í leikferð til Spánar á síðasta ári þar sem hún hlaut frábærar viðtökur enda mannbætandi upplifun í hæsta gæðaflokki! Sýningar hefjast 4. desember Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll....

Sjá meira

Ársrit Bandalagsins 2011–12 komið út

Nú er ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið komið út 2011–2012. Eins og í fyrra verður því aðeins dreift hér á Leiklistarvefnum í pdf-formati. Í ársritinu eru allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalagsins og aðildarfélaga þess og umtalsvert magn af myndum víðsvegar af úr starfinu. Kjörið til að láta liggja frammi í húsnæði félagsins svo að leikfélagsfélagar geti kynnt sér hvað er að gerast í áhugaleikhúsinu. Hér er má sækja ársritið. Leikfélög og einstaklingar geta þó pantað útprent ef það er gert fyrir mánudaginn 3. desember, Kostnaður er þá 2.000 kr. fyrir útprentið og ef þið viljið fá þetta gormað inn...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert