100 ár frá fæðingu Thorbjørns Egner
Í tilefni af því að í dag, 12. desember, eru 100 ár liðin frá fæðingu norska barnabóka og leikritahöfundarins Thorbjørns Egner, stendur Landsbókasafnið – Háskólasafn, í samvinnu við sendiráð Noregs, Nasjonalbibliteket í Osló, Þjóðleikhúsið og Leikminjasafnið, fyrir sýningu tengdri Egner en hann, auk þess að semja verkin og tónlistina við þau, hannaði hann gjarnan búninga, leikmyndir og kynningarefni fyrir verkin sín. Sýningin er í Þjóðarbókhlöðunni og hefst kl. 15.30. Á opnunni munu Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur og Dag Wernø Holter sendiherra Noregs flytja ávarp. Thorbjørn Egner fæddist í einu af eldri hverfum Oslóar 12. desember...
Sjá meira


