Author: lensherra

Makalaus sambúð á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Makalaus sambúð eftir Neil Simon í þýðingu og leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar, þann 15. mars í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefst sýningin kl. 19.00. Alls eru 8 leikarar og hópur aðstoðarfólks sem taka þátt í verkefninu að þessu sinni. Leikfélagið stefnir að sýningarhaldi á fleiri stöðum en það mun koma betur í ljós síðar. Leikritið, sem heitir á ensku The Odd Couple, fjallar um ungan fréttamann sem hefur verið sparkað af eiginkonu sinni, og flytur inn með vini sínum íþróttafréttamanninum. Vinurinn er hinn mesti sóði, og er sambúðin hin kostulegasta á köflum þar sem sambýlingarnir læra...

Sjá meira

Saumastofan í Gnúpverjahreppi

Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja frumsýnir þann 16. mars leikritið Saumastofuna  eftir Kjartan Ragnarsson. Verkið var fyrst sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur við gífurlegar vinsældir og nú er það komið í Gnúpverjahreppinn. Saumastofan er gamanleikrit með tónlist og söng ásamt dramatísku ívafi. Leikstjóri verksins er Svandís Dóra Einarsdóttir og sýnt er í félagsheimilinu Árnesi. Saumastofan var  skrifuð í tilefni af kvennaárinu 1975 sem náði hápunkti með kvennafrídeginum sama ár. Leikritið sló í gegn og var sýnt yfir 200 sinnum á 3 árum. Saumastofan var ádeila inn í þjóðfélagið á sínum tíma, þar sem staða konunnar innan feðraveldisins var miðpunktur ádeilunnar. Af...

Sjá meira

Hallvarður Súgandi kemur undan feldi

Leikfélagið Hallvarður Súgandi á Suðureyri frumsýnir föstudaginn 15. mars farsann Sex í sveit eftir Marc Camoletti. Leikritið, sem er þýtt og staðfært af Gísla Rúnari Jónssyni, var upphaflega var sýnt í Borgarleikhúsinu við gríðarlega góðar undirtektir og hefur í kjölfarið verið vinsælt viðfangsefni áhugaleikfélaga um land allt. Þetta er fyrsta uppsetningin hjá Hallvarði í 6 ár. Leikstjóri er Ársæll Níelsson Sex í sveit gekk í þrjú leikár hjá Leikfélagi Reykjavíkur og er eitt af vinsælustu leikritum Borgarleikhússins frá upphafi. Verkið er meinfyndið en í því segir frá ástarmálum hjónanna Benedikts og Þórunnar en inn í þau blandast Sóley viðhald...

Sjá meira

Leiklistarskóli Bandalagsins 2013

Starfstími skólans á þessu ári er frá 8. til 16. júní að Húnavallaskóla í Austur-Húnavatnssýslu. Skráning í skólann hefst 15. mars og stendur til til 15. apríl.  Fjögur námskeið verða í boði að þessu sinni. Í takt við traustar hefðir leggjum við áherslu á að byggja ofan á góðan grunn sem þegar hefur verið lagður auk þess að bjóða upp á ný og spennandi tækifæri. Í fyrra kynnti Árni Pétur Guðjónsson töfraheim leiklistarinnar fyrir nýliðum og hann kemur aftur í sumar með framhald, Leiklist II. Reyndari leikurum bjóðum við að kynnast spennandi aðferðum Þóreyjar Sigþórsdóttur sem hefur umtalsverða menntun...

Sjá meira

Félegt fés frumsýnt á Bolungarvík

Leikfélag Bolungarvíkur frumsýnir farsann Félegt fés eftir Dario Fo, laugardaginn 9. mars í Félagsheimili Bolungaríkur. Þýðinguna gerði Þórarinn Eldjárn en Magnús Guðmundsson leikstýrir. Þetta er önnur sýning Leikfélags Bolungarvíkur eftir að það var endurreist en sl. vetur en þá sýndi það Að eilífu eftir Árna Ibsen. Auk frumsýningar verður Félegt fés sýnt dagana 15., 16., 29, og 30. mars og hefst sýningin kl. 20 nema þann 29., þá hefst hún kl. 15. Félegt fés er dæmigerður farsi úr smiðju Dario Fo. Hann fjallar um Agnelli sem er forstjóri Fiat verksmiðjunnar. Hann lendir í slysi með þeim afleiðingum að andlit hans skaddast og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert