Tumi Tímalausi í Álfheimum
Leikhópurinn Grímurnar á Akureyri setur upp á stóra sviðinu í Hofi á Akureyri þann 23. mars nk., nýjan barnasöngleik með tónlistinni af vísnaplötum Gunnars Þórðarsonar, Einu sinni var og Út um græna grundu. Höfundar eru Pétur Guðjónsson og Jóhanna G Birnudóttir sem skrifað hafa tvö önnur leikrit sem sett hafa verið upp á Akureyri. Friðrik Ómar sér um útsetningar og stjórnar upptöku, söng-og kórstjórar eru Heimir Ingimarsson og Margrét Árnadóttir en Ívar Helgason hannar útlit á sýningunni, auk þess að sjá um leikstjórn og dans. Um 25 börn eru í sýningunni, auk fullorðinna, svo hátt í 60 manns koma...
Sjá meira


