Author: lensherra

Anna á Stóru-Borg í fyrsta sinn á fjalirnar

Leikfélag Austur-Eyfellinga sýnir frumsamda leikgerð eftir skáldsögu Jóns Trausta um Austur-Eyfellinginn Önnu Vigfúsdóttur í Stóru-Borg. Margrét Tryggvadóttir leikskólakennari á Hvolsvelli skrifar leikgerðina og leikstjóri er Sveinn Óskar Ásbjörnsson. Þátttakendur eru á þriðja tug. Sýningar verða í félagsheimilinu Heimalandi undir fjöllunum. Frumsýning er fyrirhuguð í byrjun apríl. Með titilhlutverkið fer Þórunn Ólafsdóttir og bróður hennar, Pál Vigfússon lögmann á Hlíðarenda, leikur Bjarni Böðvarsson. Anna Vigfúsdóttir var fædd í byrjun 16. aldar og dó árið 1571. Hún var hefðarkona en þekktust fyrir samband sitt við alþýðupiltinn Hjalta Magnússon og langvarandi stríð við lögmanninn bróður sinn af þeim sökum. Siðaskiptin koma þar...

Sjá meira

Höfundasmiðja og leiklistarnámskeið

Í byrjun mars þá mun Leikfélag Hafnarfjarðar verða með Höfundasmiðju, þar sem áhersla verður lögð á ritun styttri leikverka. Tveimur vikum seinna munu síðan hefjast æfingar á stuttverkadagskrá þar sem afrakstur þessarar höfundasmiðju verður settur á svið í Gaflaraleikhúsinu. Þann 3. mars hefst námskeið í leiklist hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar. Námskeið þetta er ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynsluaf leiklist en brennandi áhuga á að reyna fyrir sér á sviði. Athugið að námskeiðið er ætlað fullorðnum, 18 ára og eldri. Námskeiðið stendur í tvær vikur og er kvöldnámskeið.     Þeir sem áhuga hafa á að vera með...

Sjá meira

Dansaðu fyrir mig í Tjarnarbíói

Dansaðu fyrir mig, dansverk eftir Brogan Davison og Pétur Ármannsson, frumsýnt í Tjarnarbíó fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00. Verkið hefur áður verið sýnt í Hofi á Akureyri fyrir fullu húsi og á leiklistarhátíðinni Lókal í ágúst á síðasta ári, en nú í febrúar og mars fá höfuðborgarbúar tækifæri til að sjá sýninguna. Uppselt er á fyrstu tvær sýningarnar, 20. og 23. febrúar, en næstu tvær sýningarnar verða 1. og 2. mars. Það er því vissara að hafa hraðar hendur og missa ekki af þessu frábæra dansverki, en það hefur hlotið mikið lof þar sem það hefur verið sýnt. Sýningunni...

Sjá meira

Fyrirgefðu ehf. í Tjarnarbíói

Tjarnarbíó frumsýnir nýtt, íslenskt leikverk, Fyrirgefðu ehf. föstudaginn 14. febrúar. Höfundurinn og leikstjórinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Málamyndahópurinn bjóða í ferðalag með Evu og félögum hennar hjá Fyrirgefðu ehf. þar sem fyrirgefningin er skoðuð ofan í kjölinn. Hvaða þýðingu hefur fyrirgefningin raunverulega? Er alltaf rétt að fyrirgefa? Eða er sumt ófyrirgefanlegt? Fyrirgefum við eingöngu í því skyni að létta á okkur sjálfum? Fyrirgefðu ehf. er fyrirtæki sem býður hreina samvisku og fyrirgefningu í hverskyns deilumálum. Þegar aðalsöguhetjan Eva hefur störf hjá fyrirtækinu er henni kennt Lögmálið að fyrirgefningunni, sem sannreynt hefur verið í tugþúsundum tilvika um allan heim. Þjónusta...

Sjá meira

Bróðir minn Ljónshjarta á Selfossi

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren hjá Leikfélagi Selfoss. Verkið þarf vart að kynna fyrir fólki en þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. 20 leikarar taka þátt í sýningunni og eru aðalhlutverk í höndum Baldvin Alans Gunnarssonar, sem leikur Snúð, og Bjarka Þórs Sævarssonar, sem leikur Jónatan. Leikstjóri verksins er Sigrún Valbergsdóttir.Frumsýnt verður 21. febrúar og að vanda er sýnt í Litla leikhúsinu við Sigtún. Bræðurnir Karl og Jónatan hittast aftur, eftir stutta jarðneska dvöl, í landinu Nangijala, þar sem sögur eru sagðar við varðeldana. Lífið í Kirsuberjadal mótast af grimma Riddaranum Þengli,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert